Innlent

Unglingsstúlkur staðnar að þjófnaði

Gissur Sigurðsson skrifar
vísir/gva
Tvær unglingsstúlkur voru staðnar að þjófnaði í verslunarmiðstöð í Kópavogi í gærkvöld. Vörur að andvirði um tuttugu þúsund krónur fundust á þeim og var haft samband við foreldra þeirra auk þess sem barnavernd var gert viðvart.

Þá var brotist inn í heimahús í vesturborginni, þar sem þjófar létu greipar sópa og stálu meðal annars raftækjum. Þeir komust undan og eru ófundnir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×