Íslenski boltinn

Ungir miðverðir og markvörður Fjölnis skelltu í lás á leið í úrslitaleikinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ágúst Gylfason er með unga menn í öftustu víglínu sem eru að standa sig vel.
Ágúst Gylfason er með unga menn í öftustu víglínu sem eru að standa sig vel. vísir/hanna
Fjölnir vann öruggan sigur á KR, 3-0, í seinni undanúrslitaleik Reykjavíkurmótsins í fótbolta í gærkvöldi og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á móti Val sem fram fer á mánudagskvöldið.

Ingimundur Níels Óskarsson kom Fjölni yfir í fyrri hálfleik en danski framherjinn Marcus Solberg skoraði tvívegis í seinni hálfleik og innsiglaði sanngjarnan sigur Fjölnismanna sem voru í heildina betri aðilinn.

Eins og tölurnar gefa til kynna hélt Fjölnisliðið hreinu í gær og það var svo sannarlega í takt við spilamennsku þess í Reykjavíkurmótinu. Það er nefnilega ekki enn búið að fá á sig mark í mótinu en það vann alla þrjá leiki riðilsins með markatölunni 8-0 og er í heildina búið að vinna fjóra leiki núna með markatölunni 11-0.

Ungir menn á uppleið

Þetta er nokkuð merkileg tölfræði í ljósi þess hversu ungir lykilmennirnir aftast á vellinum eru; miðverðirnir tveir og markvörðurinn. Fjölnir hefur spilað á sterkum miðvörðum undanfarin ár eins og Daniel Ivanovski og Tobias Salquist en nú eru það ungir heimamenn sem standa vaktina, allavega í byrjun árs.

Miðverðirnir tveir sem hafa spilað saman alla leikina nema einn eru Hans Viktor Guðmundsson (20 ára) og Torfi Tímoteus Gunnarsson (18 ára). Í markinu er svo hinn 19 ára gamli Jökull Blængsson sem hefur spilað alla fjóra leikina í fjarveru Þórðar Ingasonar sem er meiddur.

Fjölnir mætti tveimur Pepsi-deildarliðum; Val og KR, á leið sinni í úrslitaleikinn og tveimur liðum úr Inkasso-deildinni; Leikni R. og Þrótti. Hans Viktor og Torfi spiluðu saman í öllum leikjunum nema á móti Þrótti sem Fjölnir vann, 4-0, með yfirburðum.

Ólympíuverðlaunahafi

Hans Viktor kom við sögu í 19 leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra, fyrst sem varamaður en hann var orðinn fastamaður í byrjunarliðinu undir lokin. Hann vakti það mikla athygli að hann var í fyrsta sinn valinn í U21 árs landsliðs hópinn sem mætti Úkraínu í úrslitaleik á Laugardalsvelli um sæti á EM 2017 síðasta haust.

Torfi Tímóteus, sem á enn eftir að þreyta frumraun sína í Pepsi-deildinni, hefur um langa hríð verið barnastjarna í yngri flokkunum. Hann er hluti af sterkum 1999 árgangi Íslands sem vann til Bronsverðlauna á Ólympíuleikum æskunnar í Suður-Kóreu árið 2014. Hann á að baki fimmtán leiki fyrir U17 ára landsliðið.

Jökull Blængsson á tvo leiki að baki fyrir Fjölni í Pepsi-deildinni. Í bæði skiptin kom hann inn á sem varamaður fyrir Steinar Örn Gunnarsson. Hann þreytti frumraun sína árið 2015 í 4-3 sigurleik gegn Víkingi og kom svo aftur inn á í 1-0 tapi gegn Val á síðustu leiktíð.

Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD á mánudagskvöldið klukkan 18.55.

Leikir Fjölnis í Reykjavíkurmótinu:

Fjölnir - Leiknir R.  1-0

Markvörður: Jökull Blængsson

Miðverðir Hans Viktor Guðmundsson og Torfi Tímóteus Gunnarsson

Fjölnir - Valur  3-0

Markvörður: Jökull Blængsson

Miðverðir Hans Viktor Guðmundsson og Torfi Tímóteus Gunnarsson

Þróttur R. - Fjölnir  0-4

Markvörður: Jökull Blængsson

Miðverðir Hans Viktor Guðmundsson og Tumi Guðjónsson

Fjölnir - KR  3-0

Markvörður: Jökull Blængsson

Miðverðir Hans Viktor Guðmundsson og Torfi Tímóteus Gunnarsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×