Lífið

Ung Kung Fu stjarna er fædd - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Drengurinn lék eftir frægt atriði Bruce Lee.
Drengurinn lék eftir frægt atriði Bruce Lee.
Little Big Shots eru frábærir skemmtiþættir þar sem litlar stjörnur fá að láta ljós sitt skína. Ellen DeGeneres er ein af höfundum þáttarins ásamt kynninum góðkunna Steve Harvey.

Í þáttunum má sjá hvert barnið á fætur öðru stíga á stokk en öll eiga þau það sameiginlegt að vera gædd óvenjulegum og miklum hæfileikum.

Þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 á laugardögum klukkan 19.10, strax á eftir fréttum en hér að neðan má sjá skemmtilegt atriði úr þáttunum þar sem ungur drengur leikur listir sínar í Kung fu. Á YouTube hafa um 4,5 milljónir manna horft á myndbandið með unga stráknum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×