Innlent

Undrast að ekkert sé minnst á umhverfismál í búvörusamningi

Heimir Már Pétursson skrifar
Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna eru undrandi á því að nánast ekkert sé fjallað um umhverfismál í nýgerðum búvörusamningi. Þá sé hvorki litið á þá sem stunda svína- og alifuglarækt sem bændur í samningnum.

Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna og Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem þær ræddu meðal annars nýgerðan búvörusamning.

Ragnheiður lýsti því yfir á Facebook-síðu sinni strax og nýr búvörusamningur lá fyrir að hann færi aldrei í gegnum Alþingi með hennar samþykki.

„Já ég hef sagt það, í þeirri mynd sem hann er. Mér finnst margt vera mjög sérstakt í þessum samningi og það er kannski meira sérstakt það sem ekki stendur þar,“ sagði Ragnheiður. Það væri skondið að Bændasamtökin og aðrir þeir sem stæðu að þessum samningum litu hvorki á þá sem stunduðu svína- né alifuglarækt sem bændur.

Sjá einnig: Segir nefnd um búvörusamninga aldrei hafa komið saman

„Á það er í raun og veru ekkert minnst og það er enginn rammi utan um þeirra framleiðslu eða neitt í þá veru. Þannig að kannski eru Bændasamtökin sjálf að senda mjög skýr skilaboð eftir því sem virðist. Svo er líka fyrir mig mjög sérstakt að á árinu 2016 og til næst tíu ára er vart minnst á umhverfismál í þessum búvörusamningi,“ bætti Ragnheiður við

Þau mál væru ofarlega á dagskrá og markmið sett á Parísarráðstefnunni nýlega og umhverfismál væru til umræðu á Alþingi.

Svandís Svavarsdóttir sem áður gegndi embætti umhverfisráðherra tók undir með Ragnheiði og minnti á að danski umhverfisráðherrann hefði sagt af sér embætti í gær, vegna þjónkunar við danska landbúnaðinn.

„Það er óásættanlegt annað en að þessi búvörusamningur sé borinn af loftlagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins. Ef við meinum eitthvað með því sem við segjum verður það að vera þannig. Hins vegar liggur fyrir að þetta er mjög flókið mál og það er mjög vont ef aðgangurinn að því að ræða þetta verður einkamál einhverra sérfræðinga og þröngra hópa,“ sagði Svandís.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×