Sport

Undradrengurinn lyfjaður á Instagram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Thompson í bardaganum gegn Woodley á dögunum.
Thompson í bardaganum gegn Woodley á dögunum. vísir/getty
Maðurinn sem þjálfari Gunnars Nelson vill að hann berjist við næst, Stephen Thompson, setti inn myndband af sjálfum sér á Instagram í gær þar sem hann er ekki alveg með sjálfum sér.

Thompson, sem kallar sig Undradrenginn, var nefnilega að koma úr aðgerð og vildi láta aðdáendur sína vita að aðgerðin hefði gengið vel.

Hann var enn vel slompaður af lyfjunum eins og sjá má hér að neðan.

Það eru um þrjár vikur síðan hann barðist í annað sinn um titilinn í veltivigt UFC og tapaði naumlega gegn Tyron Woodley.

Þjálfari Gunnars, John Kavanagh, vill að Gunnar berjist við Thompson í sumar en hvort að Thompson verði klár í bardaga þá verður að koma í ljós.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×