Innlent

Undirstöðurnar illa farnar undir brúnni

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Hér sést vel hve mikið hefur farið undan undirstöðunum.
Hér sést vel hve mikið hefur farið undan undirstöðunum. Mynd/Ingibjörg Eiríksdóttir

Brúnni yfir Eldvatn hjá Ásum var lokað í dag vegna þess hvað aurflóðið úr Skaftárjökli hefur grafið mikið undan brúnni. Bændur telja að sveitin verði lengi að jafna sig eftir hlaupið og að sandfok komi til með að aukast á svæðinu að því loknu.



Töluverðar skemmdir hafa orðið á brúm, túnum og vegum vegna Skaftárhlaupsins. Tekist hefur að halda þjóðvegi 1 opnum þrátt fyrir að vatn hafi víða flætt beggja vegna við hann síðan í gær. Gröfur hafa verið notaðar til þess að reisa varnargarða í von um að beina flóðvatninu frá hringveginum.

Brúin yfir Eldvatn hjá Ásum.Mynd/Ingibjörg Eiríksdóttir

Beljandi fljót hefur dunið á brúm. Áin hefur flætt yfir brúargólfið og grafið undan stöplum. Þá var brúnni yfir Eldvatn við Ása lokað um þrjúleytið í dag. Grafið hefur mikið undan eystri stólpa brúarinnar og var hætta tekin að myndast. Brúin er bæði lokuð akandi og gangandi vegfarendum og verður hún að öllum líkindum lokuð næstu daga. Á meðan er hægt að aka Hrífunesveginn. Bændur á svæðinu hafa fylgst vel með því hvernig flóðið hefur leikið brýrnar.



Tún eru víða illa farin og á nokkrum þeirra hafa myndast hálfgerð stöðuvötn. „Þetta land verður lengi að jafna sig náttúrulega. Svo er endalaust fok úr þessu líka,“ segir Gísli Halldór Magnússon bóndi á Ytri-Ásum. Mikill leir berst með flóðinu og eiga bændur von á að þurfa að glíma við afleiðingarnar næstu árin. „Það er búið að vera alltaf síðan að þetta fór að byrja að koma þetta helvítis sandfok. Þetta er alveg drepandi,“ segir Oddsteinn Kristjánsson bóndi í Hvammi.


Tengdar fréttir

Kolsvartur beljandi sem aldrei fyrr

Skaftárhlaupið er það lang stærsta sem mælingar ná til frá 1955. Ljóst að skemmdir að grónu landi eru tilfinningarlega. bændur hafa orðið fyrir miklu tjóni óttast heimamenn. Mannvirki stóðust vatnsflauminn.

„Þetta er alltaf að síga á ógæfuhliðina“

Miklar skemmdir hafa orðið á brúm, túnum og vegum vegna Skaftárhlaupsins. Þjóðvegur eitt er enn opinn þó vatn flæði víða beggja vegna við hann. Lögreglan er með viðbúnað ef til þess kemur að það þurfi að loka veginum síðar í dag eða á morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×