Sport

Undirskriftalisti til að losna við Simms

Phil Simms í rosalegasta pels sem Vísir hefur séð lengi.
Phil Simms í rosalegasta pels sem Vísir hefur séð lengi. vísir/getty
Stuðningsmenn Denver Broncos hafa fengið sig fullsadda á lýsaranum Phil Simms hjá CBS og vilja losna við hann af leikjum félagsins.

Simms, sem er fyrrum leikstjórnandi NY Giants, er búinn að gera stuðningsmennina brjálaða enda talar hann liðið stanslaust niður og er ósammála öllum dómum sem falla Denver-megin.

„Ég vil ekki hljóma eins og ég sé á móti Denver en..." sagði Simms meðal annars um helgina er hann var að lýsa leik Denver og Kansas City.

Fólkið í Denver stofnaði undirskriftalista í gær þar sem skorað er á CBS að hætta að senda Simms á leiki liðsins.

Þegar þetta er skrifað höfðu um 30 þúsund manns skrifað undir áskorunina.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×