Lífið

Undirbúningur við nýja Venna Páer seríu hafinn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Venni Páer
Venni Páer vísir/pjetur
Júdókappinn og fasteignasalinn Vernharð Þorleifsson hefur hlotið 800.000 kr. styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands til að vinna að handriti annarrar seríu þáttanna Venni Páer. Vernharð greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni en fyrsta og eina sería þáttanna hingað til kom út 2006-07.

„Ég er auðvitað miður mín þar sem við sóttum um 810 þús en maður verður þá bara að taka eitt helgar-harkkvöld á Micrunni til að láta áætlanirnar ganga upp,“ segir Vernharð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×