Lífið

Undirbúa sjónvarpsþætti byggða á Rush Hour

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þeir Jackie Chan og Chris Tucker voru í aðalhlutverkum í kvikmyndunum Rush Hour.
Þeir Jackie Chan og Chris Tucker voru í aðalhlutverkum í kvikmyndunum Rush Hour.
Undirbúningur er hafinn við gerð sjónvarpsþátta byggða á kvikmyndunum Rush Hour. Myndirnar skörtuðu þeim Jackie Chan og Chris Tucker í aðalhlutverkum. Bill Lawrence, höfundur grínþáttanna Scrubs, verður annar af handritshöfundum þessara nýju þátta auk þess að vera einn framleiðenda.

Samkvæmt vefmiðlinum Deadline hefur verkefnið fengið grænt ljós hjá Warner Brothers framleiðslufyrirtækinu en það var eitt dótturfélaga þess, New Line Cinema, sem framleiddi Rush Hour myndirnar. Verði af framleiðslu þáttanna er um að ræða klukkutíma langa grín og hasarþætti.

Ekki er búið að ganga frá öllum lausum endum við gerð þáttanna, að því er fram kemur í frétt Deadline um málið. Enn er til að mynda ekki búið að landa samning við neina sjónvarpsstöð um sýningu þeirra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×