Fótbolti

Undanúrslit Meistaradeildarinnar: Ronaldo aftur til Manchester

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu gegn Wolfsburg og kom Real Madrid áfram í undanúrslitin.
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu gegn Wolfsburg og kom Real Madrid áfram í undanúrslitin. Vísir/Getty
Manchester City mun mæta margföldum Evrópumeisturum Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en dregið var í morgun.

City er nú í undanúrslitum keppninnar í fyrsta sinn í sögunni og fær nú það verkefni að kljást við Cristiano Ronaldo og félaga í Real Madrid. Ronaldo snýr því aftur til Manchester en hann lék sem kunnugt er með Manchester United um árabil.

Atletico Madrid, sem sló Barcelona úr leik í 8-liða úrslitunum, mætir því þýska stórveldinu Bayern München í hinni undanúrslitaviðureigninni.

Leikirnir fara fram 26./27. apríl og 3./4. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×