Erlent

Umsátur um heimili Chris Brown

Samúel Karl Ólason skrifar
Chris Brown.
Chris Brown. Vísir/Getty
Lögreglan í Los Angeles hefur í dag leitast eftir því að fá heimild til húsleitar á heimili tónlistarmannsins Chris Brown. Hann er sakaður um að hafa miðað byssu á konu á heimili sínu í nótt.

Lögregluþjónar eru sagðir hafa bankað á hurðina hjá Brown, en þeim var ekki hleypt inn.

Samkvæmt heimildum LA Times, sakaði konan Chris Brown um að hafa miðað byssunni á sig í bræðiskasti. Hún segist þá hafa hlaupið út af heimili hans og hringt á lögregluna.

Blaðamenn TMZ segjast hafa heimildir fyrir því að sérsveit lögreglunnar hafi verið kölluð til að framfylgja leitarheimildinni.

Chris Brown var á skilorði í sex ár eftir að hann viðurkenndi að hafa beitt söngkonuna Rihönnu ofbeldi árið 2009, en þau voru þá par.

Uppfært 16:30

Chris Brown hefur birt þrjú myndbönd á Instagramsíðu sinni þar sem hann segist vera nývaknaður. Í myndböndunum fer Brown mikinn og skammast yfir lögreglunni. Hann segist ekki hafa lokað sig af inn í húsi sínu og að hann hafi ekkert gert af sér.

Myndböndin má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×