Innlent

Umsækjandi vill rökstuðning

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Ragnheiður Skúladóttir er nýráðinn listrænn stjórnandi LA.
Ragnheiður Skúladóttir er nýráðinn listrænn stjórnandi LA.
Ragnheiður Skúladóttir ætlar að fara fram á rökstuðning vegna ráðningar Ara Matthíassonar sem þjóðleikhússtjóra.

Ari Matthíasson var á dögunum skipaður þjóðleikhússtjóri til fimm ára af menntamálaráðherra en tíu sóttu um starfið. Þjóðleikhúsráð gaf umsögn þar sem mælt var með fjórum umsækjendum og stóð valið í endann á milli Ara og Ragnheiðar.

Ragnheiður staðfestir við Fréttablaðið að hún ætli að fara fram á rökstuðning vegna ráðningarinnar en vill ekki tjá sig meira um málið fyrr en hún fær rökstuðninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×