Innlent

Umræður á fundinum voru erfiðar en hreinskilnar

Sveinn Arnarsson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson vék af þingflokksfundi eftir um 90 mínútur og hélt til Akureyrar. Fréttablaðið/Eyþór
Sigurður Ingi Jóhannsson vék af þingflokksfundi eftir um 90 mínútur og hélt til Akureyrar. Fréttablaðið/Eyþór
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra tilkynnti í gær um framboð sitt til formennsku í Framsóknarflokknum. Sagði hann ákvörðunina hafa verið erfiða en á síðustu vikum hefði hann ekki getað hunsað þrýsting flokksmanna.

Sigurður Ingi valdi að tilkynna um framboð sitt í kjördæmi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, núverandi formanns.

„Ég vil segja að síðustu vikurnar hafa gert það að verkum að ég hef farið að hugsa um þetta af einhverri alvöru,“ segir Sigurður Ingi.

Ljóst er að mótspyrna Sigurðar Inga verður mun meiri en sitjandi formaður fékk á kjördæmisráði flokksins í Mývatnssveit um síðustu helgi Fréttablaðið/Eyþór
Hann segir flokkinn ekki á góðum stað núna.

„Ég tel það óheppilegt fyrir flokkinn að halda áfram í því andrúmslofti sem hann er í í dag. Það er best að fá skýra lausn í málið á flokksþingi hver sem hún verður. Sá sem kosinn er formaður hefur þá óskorað umboð flokksmanna til að ganga til kosninga.“

Þingflokkur Framsóknarflokksins var kallaður saman með skömmum fyrirvara til fundar í Alþingishúsinu í hádeginu í gær til að ræða forystu flokksins. Í rúmar þrjár klukkustundir fundaði þingflokkurinn um stöðu formannsins og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru umræður erfiðar en hreinskilnislegar.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tilkynnti Sigurður Ingi ekki um formannsframboð á fundinum.

Frá lyklaskiptum Sigmundar Davíðs og Sigurðar Inga í vor.
„Þetta er óvenjuharkalegt uppgjör sem er að verða innan flokksins en yfirleitt hefur það verið með öðrum hætti en að formaðurinn sé skoraður á hólm korteri fyrir kosningar,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Hann segir val Framsóknarflokksins nú snúast að miklu leyti um hvor þeirra sé líklegri til að geta komið flokknum aftur í ríkisstjórn. 

„Það er augljóst að Sigmundur Davíð er umdeildasti stjórnmálamaður landsins og aðrir leiðtogar myndu helst vilja sleppa því að vinna með honum. Sigurður Ingi hefur hins vegar reynst sitja á friðarstóli sem forsætisráðherra og virðist njóta trausts og virðingar annarra forystumanna í stjórnmálum. Það skiptir máli í því mati sem Framsóknarmenn standa frammi fyrir.“

Ekki náðist í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Fréttablaðsins. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×