Lífið

Ummi með nýtt smáskífulag

Freyr Bjarnason skrifar
Tónlistarmaðurinn hefur gefið út smáskífulagið Skiptir ekki máli.
Tónlistarmaðurinn hefur gefið út smáskífulagið Skiptir ekki máli. Fréttablaðið/Pjetur
Listamaðurinn Ummi Guðjónsson gaf í gær út smáskífulagið Skiptir ekki máli í tilefni þess að Kim Larsen átti afmæli sama dag.

Lagið er fimmta og síðasta smáskífulag plötunnar Stundum er minna meira, sem kom út í fyrrasumar. Það er aðgengilegt til niðurhals á heimasíðu Umma, Ummig.com, Kim Larsen og öðrum tónlistarunnendum að kostnaðarlausu.

Öll áður útkomin smáskífulög Umma má einnig finna á Ummig.com ásamt öllum tónlistarmyndböndum sem Ummi hefur sent frá sér undanfarið. Einnig er hægt að sjá myndböndin á YouTube-síðu Umma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×