Körfubolti

Ummerki um Durant fjarlægð á heimavelli Oklahoma | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Durant ætti að sleppa því að koma til Oklahoma á næstunni.
Durant ætti að sleppa því að koma til Oklahoma á næstunni. vísir/getty
Það tók NBA-liðið Oklahoma City Thunder innan við sólarhring að afmá öll merki um að Kevin Durant væri leikmaður félagsins.

Durant tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að yfirgefa Thunder og ganga í raðir Golden State Warriors í staðinn.

Sjá einnig: Stórkostlegt rifrildi í Oklahoma um Durant

Í dag voru síðan vinnumenn mættir á heimavöll Oklahoma að taka niður allar myndir af honum í húsinu. Hér að neðan má sjá er myndin af honum utan á húsinu er rifinn niður.

Durant var stærsta stjarna félagsins og er mikil reiði í mörgum stuðningsmönnum félagsins að hann hafi ákveðið að fara.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×