Handbolti

Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 23-26 | FH-ingar hefndu fyrir bikartapið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ágúst Birgisson skorar fyrir FH í kvöld.
Ágúst Birgisson skorar fyrir FH í kvöld. Vísir/Anton
FH vann þriggja marka sigur á nýkrýndum bikarmeisturum Vals, 23-26, þegar liðin mættust í 20. umferð Olís-deildar karla í kvöld.

Anton Brink, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum og náði þessum myndum hér fyrir ofan.

Þessi sömu lið mættust í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins á föstudaginn en þar höfðu Valsmenn betur, 20-19. Þeir unnu svo Aftureldingu í úrslitaleiknum, 22-26.

Valsmenn voru óvenju sprækir í fyrri hálfleik og hin margfræga bikarþynnka virtist hrjá þá.

Hlynur Morthens var frábær í marki Vals í fyrri hálfleik og varði átta skot (40%). Á meðan fann Ágúst Elí Björgvinsson sig engan veginn í marki FH og varði aðeins þrjú skot (20%) í fyrri hálfleik.

Orri Freyr Gíslason, fyrirliði Vals, var sérlega öflugur í byrjun leiks og skoraði fjögur af fyrstu sjö mörkum bikarmeistaranna. Anton Rúnarsson var duglegur að finna Orra í upphafi leiks en fyrir utan það átti hann alls ekki góðan leik.

Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrri hálfleik og það var kannski vel við hæfi að staðan væri jöfn, 12-12, þegar þau gengu til búningsherbergja.

FH-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn af gríðarlegum krafti og skoruðu fyrstu fimm mörk hans. Valsmenn voru heillum horfnir og töpuðu boltanum í þrígang á fyrstu fjórum mínútum seinni hálfleiks.

Þrátt fyrir þessa frábæru byrjun á seinni hálfleiks gerðu FH-ingar sér hlutina full erfiða og Valsmenn voru aldrei langt undan.

Atli Már Báruson spilaði mikið í kvöld og hann dró Valsmenn aftur inn í leikinn með góðum mörkum. Atli gerði alls sex mörk og var markahæstur í liði Vals.

Einar Rafn Eiðsson kom FH í 20-24 þegar sex mínútur voru eftir. Valur gafst þó ekki upp og svaraði með þremur mörkum og staðan því 23-24.

Valsmenn fengu tækifæri til að jafna en töpuðu boltanum klaufalega. FH-ingar fóru í sókn og Ágúst Birgisson kom þeim tveimur mörkum yfir og kláraði leikinn. Lokatölur 23-26, FH í vil.

Ágúst átti frábæran leik á línunni og skoraði sjö mörk í jafnmörgum skotum. Einar Rafn kom næstur með sex mörk í sex skotum. Þá átti Birkir Fannar Bragason flotta innkomu í mark FH og varði níu skot (45%) í seinni hálfleik.

Orri Freyr: Byrjuðum ekki seinni hálfleikinn

Orri Freyr Gíslason, fyrirliði Vals, sagði að slæm byrjun á seinni hálfleik hafi orðið Valsmönnum að falli gegn FH í kvöld.

„Við erum vonsviknir. Við ætluðum að vinna þennan leik en FH-ingar áttu þetta skilið í dag. Þeir voru ákveðnari og grimmari og byrjuðu seinni hálfleikinn, en ekki við,“ sagði Orri eftir leik.

Staðan í hálfleik var jöfn, 12-12, en FH-ingar skoruðu fyrstu fimm mörk seinni hálfleiks og lifðu á þeirri forystu út leikinn.

„Við vorum bara ekki klárir og þeir mættu betur innstilltir,“ sagði Orri sem sagði að hin svokallaða bikarþynnka hafi ekki setið í Valsmönnum, allavega ekki í fyrri hálfleik.

„Hún var ekki til staðar, án gríns. Maður var svolítið slæmur á þriðjudag og miðvikudag en ég er orðinn góður í dag. Við spiluðum fínan leik í fyrri hálfleik en mættum ekki í þann seinni.“

Valsmenn hafa spilað mikið af leikjum að undanförnu og fengið litla hvíld. En var þreytan farin að segja til sín undir lok leiks?

„Já og nei. FH-ingarnir voru bara skynsamari en við í lokin og gerðu hlutina rétt,“ sagði Orri að lokum.

Ásbjörn: Erfið fæðing

Ásbjörn Friðriksson, fyrirliði FH, var að vonum sáttur með stigin tvö.

„Spilamennskan var allt í lagi. Þetta var svolítið erfið fæðing. Mér fannst við heilt yfir betri allan leikinn en við náðum aldrei að slíta okkur frá þeim,“ sagði Ásbjörn og bætti við að byrjunin frábæra á seinni hálfleik hefði lagt grunninn að sigrinum.

Ásbirni fannst sigurinn þó full torsóttur.

„Við vorum klaufar. Það var kafli einum fleiri þar sem við hleyptum þeim inn í leikinn. Mér fannst það okkar klaufaskapur en þeir eru alltaf skynsamir og eru með gott lið,“ sagði Ásbjörn.

FH tapaði fyrir Val í undanúrslitum bikarkeppninnar á föstudaginn. En gerir sigurinn í kvöld bikartapið eitthvað bærilegra?

„Nei, nú þurfum við bara að hætta að hugsa um það. Það verður alltaf jafn sárt. Nú erum við í annarri keppni og við erum að reyna að halda í við toppliðin í deildinni. Þetta var var liður í því að færast nær toppnum,“ sagði Ásbjörn að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×