Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Njarðvík 77-84

Vísir Körfubolti 18. febrúar 2012 13:00
Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Njarðvík 77-84
mynd/valli
Stefán Árni Pálsson í Laugardalshöll skrifar:
Njarðvík skrifaði nýjan kafla í glæsta sögu félagsins með 84-77 sigri gegn liði Snæfells í úrslitum Powerade-bikarkeppni kvenna í körfuknatleik. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið Njarðvíkur vinnur stóran titil í körfubolta en Njarðvík hefur þrívegis áður leiki til úrslita. Snæfell var í fyrsta sinn í úrslitum keppninnar.

Njarðvík byrjaði leikinn betur og hafði ákveðin tök á leiknum alveg frá byrjun til enda. Snæfellingar gáfust aldrei upp og var leikurinn í raun spennandi alveg fram til enda. Kieraah Marlow, leikmaður Snæfells, var alveg mögnuð í dag en hún skoraði 37 stig. Vandamálið hjá Snæfellingum var að aðrir leikmenn náðu sér ekki almennilega á strik.

Njarðvík dreifði álaginu betur á milli leikmanna og fleiri komust í takt við leikinn. Líklega var það það sem skildi liðin að þegar upp var staðið.


Sverrir fagnar eftir leik.
Sverrir fagnar eftir leik. mynd/valli
Sverrir: Aldrei öruggt en mikið er þetta sætt
„Þetta var magnað og mér líður gríðarlega vel núna," sagði Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur, eftir sigurinn í dag.

„Ég er bara hrikalega ánægður. Þessi leikur var ógeðslega erfiður og við þurftum að halda vel á spöðunum".

„Þetta var aldrei öruggt fyrir en það voru bara nokkrar sekúndur eftir. Við vorum að spila við svo sterkt lið að það var ekki hægt að slaka á neitt". Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Sverrir með að ýta hér.

Ingi: Þetta er liðsíþrótt og það vantaði upp á heildina hjá okkur í dag

„Það sem vantaði frá mínu liðið í dag voru fráköst," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir leikinn í dag.

„Það kom mér á óvart hvað leikurinn var jafn í hálfleik. Ég er gríðarlega stoltur hvernig liðið kom til baka í síðari hálfleikinn og við náðum að koma með smá spennu í leikinn".

„Þetta er liðsíþrótt og við náðum ekki saman sem ein heild í dag. Ég er samt stoltur af stelpunum og það eru allir Hólmarar".

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Inga með því að ýta hér.


Petrúnella átti fínan leik.
Petrúnella átti fínan leik. mynd/valli
Petrúnella: Alltaf jafn ljúft
„Það er alltaf jafn ljúft að verða Bikarmeistari," sagði Petrúnella Skúladóttir, leikmaður Njarðvíkur, eftir sigurinn í dag.

„Við náðum góðu forskoti í byrjun síðari hálfleiks og náðu að halda út. Það held ég að hafi skilað okkur þessum sigri í dag".

„Við erum bara búnar að æfa saman í allan vetur og hópurinn er að verða betri og betri. Það held ég að hafi skilað miklu í dag".

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Petrúnellu með því að ýta hér.

Tölfræði: Snæfell 77-84 Njarðvík


Snæfell: Kieraah Marlow 37/4 varin skot, Jordan Lee Murphree 15/15 fráköst/5 stoðsendingar/4 varin skot, Hildur Sigurdardottir 13/6 fráköst/6 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 5/5 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 4, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Aníta Sæþórsdóttir 0, Berglind Gunnarsdóttir 0, Ellen Alfa Högnadóttir 0, Sara Mjöll Magnúsdóttir 0, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 0.

Njarðvík: Shanae Baker-Brice 35/16 fráköst/9 stoðsendingar/5 stolnir, Lele Hardy 26/24 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 18, Salbjörg Sævarsdóttir 3, Ólöf Helga Pálsdóttir 2/9 fráköst, Sara Dögg Margeirsdóttir 0, Ína María Einarsdóttir 0, Harpa Hallgrímsdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Erna Hákonardóttir 0, Aníta Carter Kristmundsdóttir 0, Andrea Björt Ólafsdóttir 0.

Hér að neðan má lesa beina textalýsingu frá blaðamanni Vísis.


Leik lokið: 77-84 fyrir Njarðvík.

4. leikhluti:

Þetta er komið hjá Njarðvík. Staðan er 83-77 og sjö sekúndur eftir.


Tvær risa körfur í röð hjá Njarðvík. Staðan er nuna 81-75 og rúmlega ein mínúta eftir.

73-74 er staðan núna og það gengur lítið upp hjá Njarðvíkingum þessa stundina. Rúmlega þrjár mínútur eftir af leiknum.

Mikil spenna núna. Staðan er 72-67 fyrir Njarðvík. Fimm mínútur eftir.

Kieraah Marlow er gjörsamlega að fara á kostum fyrir Snæfell núna en hún hefur gert 37 stig og Njarðvíkingar ráða bara ekkert við hana. Staðan er 68-62 fyrir Njarðvík. Nóg eftir.

3. leikhluti:


Staðan er 66-58 fyrir Njarðvík fyrir lokaleikhlutann. Þær hvítu komu virkilega sterkar til baka undir lok leikhlutans og þessi leikur er svo langt frá því að vera búinn.

Komin smá spenna aftur í leikinn. Staðan er orðin 66-56, fínn sprettur hjá Snæfell.


Njarðvík er að stinga Snæfell af þessa stundina og staðan er orðin 66-48 fyrir þeim grænu. Rúmlega þrjár mínútur eftir af þriðja leikhlutanum og það verður erfitt að koma til baka úr þessu.

Þrettán stigum munar nú á liðunum 55-42 og þriðji leikhlutinn er hálfnaður. Þetta fer að verða svart fyrir Snæfell.

Njarðvík gerir sjö fyrstu stig leikhlutans og staðan er allt í einu orðin 48-38.


2. leikhluti:

Staðan er 41-38 fyrir Njarðvík í hálfleik. Það má búast við spennandi síðari hálfleik.

Bæði lið ætla sér greinilega þennan titil en núna er jafnt á öllum tölum. Staðan er 35-35 þegar fyrri hálfleiknum er rétt að ljúka.

Leikurinn er í járnum þessa stundina og litlu munar á þessum landsbyggðarliðum. 33-31 fyrir Njarðvík.

Shanae Baker-Brice er að leika virkilega vel í liði Njarðvíkur og hefur gert 13 stig og tekið sjö fráköst eftir rúmlega tíu mínútna leik. Staðan er 28-23 fyrir þær grænu.

1. leikhluti:

Stelpurnar komu sterkar til baka undir lok fyrsta leikhlutans og minnkuðu muninn niður í þrjú stig 22-19, en Njarvík er enn með undirtökin.

Leikurinn er jafn og spennandi en sem komið er og liðin skiptast á að hafa forystuna. Mikil barátta einkennir leikinn og ekki er tomma gefinn eftir. Staðan er 16-12 fyrir Njarðvík þegarSnæfell tekur leikhlé.

Njarvíkurstúlkur koma sterkar til baka og eru komnar yfir 8-6.

Snæfellingar byrja betur og eru komnar í 4-2 eftir tveggja mínútna leik.

Upphitun: Stúlkurnar eru mættar út á gólf og einbeitingin skýn úr augum allra leikmanna. Þetta er sá leikur sem öllum dreymir um að komast í og því er mikið undir.

Fyrir leik: Komiði sæl og blessuð. Hér ætlum við að fylgjast með vonandi æsispennandi bikarúrslitaleik á milli Snæfells og Njarðvíkur.

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 25. maí. 2012 19:15

Kobe Bryant í liði ársins í tíunda skiptið á ferlinum

Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, var valinn í lið ársins í NBA-deildinni í tíund...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 18:57

Stelpurnar unnu þær dönsku í spennuleik - bronsið í höfn

Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Danmörku, 72-67, í þriðja leik sínum á N...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 10:41

Stórt tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag 80-44 gegn Svíum á Norðurlandamóti...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 09:00

Miami Heat í úrslit Austurdeildar | Wade fór á kostum

Miami Heat leikur til úrslita í Austurdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik eftir 105- 9...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Njarðvík 77-84