Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Tindastóll 92-86 | Ótrúleg endurkoma Njarðvíkinga

Kristinn Páll Teitsson í Ljónagryfjunni í Njarðvík skrifar
Myron Dempsey hrósaði sigri á sínum gömlu félögum.
Myron Dempsey hrósaði sigri á sínum gömlu félögum. vísir/ernir
Njarðvík náði að vinna upp nítján stiga forskot og fagna þriðja sigrinum í röð í mögnuðum körfuboltaleik í Ljónagryfjunni í kvöld en leiknum lauk með 92-86 sigri Njarðvíkinga.

Náðu heimamenn forskotinu í fyrsta skiptið í leiknum undir lok leiksins og reyndust taugar Njarðvíkinga sterkari á lokametrunum. Sigldu þeir heim þriðja sigrinum í röð.

Með sigrinum er Njarðvík komið í þéttan pakka sem berst um sæti í úrslitakeppninni í vor en Stólarnir eru að missa af KR í baráttunni um efsta sætið.

Af hverju vann Njarðvík leikinn?

Stólarnir virtust einfaldlega vilja þetta meira strax á upphafsmínútunum og náðu snemma ellefu stiga forskoti.

Sóknarleikur Stólanna var til fyrirmyndar framan af og voru menn óhræddir við að láta boltann ganga til að finna betra skot.

Á sama tíma reiddu Njarðvíkingar mikið á að einstaklingar myndu skapa sér skotið framan af.

Það var hinsvegar allt annað Njarðvíkurlið sem mætti til leiks í seinni hálfleik, sama hvar litið er niður fæti voru allir tilbúnir að berjast fyrir stigunum í seinni hálfleik.

Hertu þeir skrúfurnar í varnarleiknum og þegar skotin fóru að detta náðu að vinna upp forskotið þar til forskotið í leiknum var þeirra.

Stigu leikmenn sem höfðu átt dapran fyrri hálfleik upp og voru allir að leggja sitt fram.

Bestu menn vallarins:

Það verður að hrósa Loga Gunnarssyni fyrir framlag hans í leiknum en hann var stigahæstur með 20 stig og setti niður stórar körfur í lokaleikhlutanum.

Mátti sjá hvað þessi sigur þýddi fyrir hann er hann fagnaði með stuðningsmönnum að leikslokum.

Vilhjálmur Theodór Jónsson og Jóhann Árni Ólafsson reyndust Njarðvíkingum drjúgir á lokamínútunum en eftir að hafa aðeins verið með fjögur stig saman í hálfleik settu þeir 23 stig saman í seinni hálfleik.

Caird var flottur í sóknarleiknum hjá Stólunum og bar hann á herðum sér í fjarveru Antonio Hester sem lenti snemma í villuvandræðum.

Setti hann niður nokkrar stórar körfur í þriðja leikhluta en hann fann ekki sama takt í lokaleikhlutanum.

Tölfræðin sem vakti athygli:

Stólarnir hittu úr 66% skota sinna í fyrri hálfleik en inn í teignum var mótstaðan lítil.

Settu Stólarnir niður 16 af 18 skotum sínum inn í teignum en voru aðeins kaldari fyrir utan, aðeins 7 af 17(41%) sem þykir þó fín tölfræði.

Þetta snerist þó við í þriðja leikhluta þar sem liðið hitti ekki úr einu skoti innan úr teignum og aðeins fjórum skotum í leikhlutanum.

Hélt Caird Stólunum inn á þeim tíma með fimmtán stigum í leikhlutanum en það virtist klára bensíntankinn fyrir lokaleikhlutann.

Njarðvík-Tindastóll 92-86 (21-28, 15-27, 30-20, 26-11)

Njarðvík: Logi  Gunnarsson 20/5 stoðsendingar, Björn Kristjánsson 14/7 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 14, Johann Arni Olafsson 13/6 fráköst, Myron Dempsey 12/7 fráköst, Jeremy Martez Atkinson 9/6 fráköst, Jón Arnór Sverrisson 6, Jón Sverrisson 4.

Tindastóll: Christopher Caird 39/6 fráköst, Pálmi Geir Jónsson 13, Antonio Hester 13/8 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 10/7 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 8/7 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 2/6 fráköst, Viðar Ágústsson 1.

Logi: Kemur alltaf einhver neisti þegar skotin detta í Ljónagryfjunni„Það er annað að gera þetta gegn liðum sem eru ekki jafn sterk en að koma svona til baka gegn bestu liðunum er magnað,“ sagði Logi Gunnarsson, ein af hetjum Njarðvíkinga eftir leikinn.

„Þeir eru tuttugu stigum yfir í fyrri hálfleik og hitta úr einhverjum rugl þrist til að klára þriðja leikhluta. Það drap samt ekki viljan til að vinna og seiglan skilar þessu.“

Logi hrósaði hugarfari Njarðvíkinga en hann ræddi meðal annars um að liðið myndi leika í úrslitakeppninni.

„Maður finnur kraftinn í húsinu á svona stundum. Það skiptir engu hver staðan er, við komumst alltaf inn í leikina á ný eins og í úrslitakeppninni í fyrra. Þetta mun fylgja okkur og ég get ekki beðið eftir því að úrslitakeppnin hefjist.“

Logi var vongóður um að liðið myndi nýta sér meðbyrinn í stað þess að falla aftur niður eins og fyrr í vetur eftir sigur í DHL-höllinni.

„Spilamennska eins og í fyrri hálfleik gengur ekki til lengdar. Það þýðir ekkert að fara í einhverja afslöppun eins og eftir leikinn gegn KR. Við getum ekki hleypt liðum svona vel af stað eins og í kvöld.“

Logi fékk að fagna með stuðningsmönnunum og máti sjá á honum hvað sigurinn þýddi að leikslokum.

„Við misstum aldrei trúnna og það kemur alltaf einhver neisti þegar skotin fara að detta í Ljónagryfjunni. Það er engin tilfinning eins og sú og að finna ánægjuna koma úr stúkunni.“

Israel Martin hundóánægður: Lékum fimm gegn átta í kvöldIsrael Martin, þjálfari Tindastóls, kom sínum mönnum til varnar eftir að hafa glutrað niður nítján stiga forskoti í Ljónagryfjunni í kvöld en hann var heldur ósáttur með dómaratríóið í kvöld.

„Strákarnir mínir spiluðu vel, við gátum spilað betur í þriðja leikhluta en dómgæslan í seinni hálfleik var einfaldlega skelfileg. Ég er orðinn þreyttur á að horfa upp á þetta,“ sagði Martin og hélt áfram:

„Við erum með gott forskot í hálfleik en dómararnir taka upp nýja línu í dómgæslunni í hálfleik og ég vill fá skýringu á því. Þeir settu niður stór skot en við þurftum að spila fimm gegn átta í seinni.“

Martin var afar ósáttur með fjórðu villuna sem dæmd var á Antonio Hester í upphafi þriðja leikhluta er dómgæslan fór að trufla gestina.

„Ef þú horfir á þetta á myndbandi þá sérðu að það er ekki brot þarna. Varnarmaðurinn hoppar á hann og hann fær dæmda á sig sóknarvillu. Ég er 100% viss um að þetta var rangur dómur.“

Hann sagði það enga afsökun að hafa leikið án Hester svona lengi.

„Við erum að vinna leikinn þegar hann kemur aftur inn á en endum á að tapa leiknum. Ég vill sjá meiri baráttu, bæði hjá honum og öðrum leikmönnum. Við vorum mjög þéttir í tuttugu mínútur en gáfum eftir,“ sagði Martin og bætti við:

„Við héldum að við gætum unnið leikinn upp á eigin spýtur en við misstum alla stjórn á leiknum,“ sagði Martin að lokum.

Daníel: Sjálfstraust er mikilvægasti þátturinn í íþróttum„Við vorum flatir framan af og ekki að gera það sem við ætluðum en breytingarnar sem við gerum í hálfleik skila þessum sigri og ég get ekki verið annað en gríðarlega ánægður með strákanna,“ sagði Daníel Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, sáttur að leikslokum.

Allt annað var að sjá til varnarleiks Njarðvíkinga í seinni hálfleik.

„Við vorum ákveðnari í vörn og fórum að finna betri skot í sókninni eftir því sem leið á leikinn. Það var líka sama hver kom inná, það komu allir tilbúnir að berjast á báðum endum vallarins.“

Njarðvíkingar settu niður mörg stór skot fyrir aftan þriggja stiga línuna í seinni hálfleik.

„Teddi kom inn og setti niður stór skot úr horninu, hann getur teigt á gólfinu og steig heldur betur upp þegar á reyndi. Ég var reyndar að fara að taka hann útaf en hann stóð fyrir sínu,“ sagði Daníel léttur.

Njarðvík er að klífa upp töfluna þessa dagana en þetta var þriðji sigur liðsins í röð.

„Vonandi spilum við áfram eins og í seinni hálfleik, svona sigrar gefa liðinu sjálfstraust og það er það mikilvægasta í íþróttum að vera með sjálfstraust. Ef við höldum áfram á sömu braut verðum við góðir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×