Umfjöllun og viðtöl: KR - Haukar 72-54

Vísir Körfubolti 31. janúar 2012 20:39
Umfjöllun og viðtöl: KR - Haukar 72-54
MYND/ANTON
Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar:
KR gjörsigraði Hauka með 18 stiga mun 72-54 í leik liðanna í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í þriðja sæti en það var ekki að sjá á leik liðanna.

Bæði lið töpuðu leikjum sínum um helgina og virtust bæði ákveðin í að bæta fyrir það því leikurinn fór fjörlega af stað. Jafnræði með liðunum allan fyrsta leikhluta en KR var einu stigi yfir, 20-19, eftir fyrstu 10 mínúturnar.

KR hóf annan leikhluta mun betur. Liðið lék öflugan varnarleik auk þess að Haukarstelpum voru mislagðar hendur undir körfunni loksins þegar færin gáfust. KR var komið með tíu stiga forystu 31-21 þegar annar leikhluti var hálfnaður. Haukar skoruðu aðeins átta stig í leikhlutanum og KR var 12 stigum yfir þegar flautað var til hálfleik 39-27.

Haukar hittu aðeins úr 20% skota sinna inni í teig í fyrri hálfleik á meðan KR hitti úr yfir helming skota sinna auk þess sem KR tók 28 fráköst gegn 18 í hálfleiknum. Það var því ljóst að margt þyrfti að breytast í hálfleik til að Haukar myndu eiga möguleika gegn einbeittu liði KR.

Haukar mættu af krafti til seinni hálfleiks og skoruðu fimm fyrstu stigin auk þess sem liðið var mun ákveðnara í varnarleiknum. Nær komust Haukar þó ekki því KR lék áfram mjög góðan varnarleik sem þvingaði Hauka í skot langt frá körfunni og enn munaði tólf stigum á liðunum þegar aðeins fjórði leikhluti var eftir 55-43.

Haukar náðu ekki að narta í forskot KR heldur bætti KR um betur og var 14 stigum yfir þegar fimm mínútur voru til leiksloka 65-51. Haukar gáfust auðveldlega og upp og hefði munurinn á liðunum í lokin hægtlega getað verið mun meiri en 18 stig í leikslok.

Jence Ann Rhoads hélt uppi sóknarleik Hauka í fyrri hálfleik með 14 stigum, þar af 11 þeirra í fyrsta leikhluta en KR tókst mjög vel að loka fyrir hana í seinni hálfleik og enginn annar leikmaður Hauka steig upp fyrir hana. Rhoads lauk leik með 18 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar.

Hjá KR skoraði Bryndís Guðmundsdóttir 19 stig og tók hún auk þess 13 fráköst en hún fór sérstaklega mikinn í seinni hálfleik. Erica Prosser skoraði 17 stig líkt og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir. Margrét Kara Sturludóttir skoraði 11 stig og hirti 14 fráköst en KR tók 54 fráköst í leiknum gegn 39 fráköstum Hauka.


Sigrún: Kom ekkert annað til greina en að taka á því
"Þetta var alls ekki létt," sagði Sigrún Sjöfn Ámundadóttir miðherji KR í leikslok.

"Við fengum skell í síðasta leik og það kom ekkert annað til greina en að herða sig aðeins upp og taka á því. Við komum sterkar til leiks. Ef maður mætir soft eftir leik eins og gegn Val þá veit ég hvað maður er að gera í þessu," sagði Sigrún.

"Við fórum vel yfir vörnina fyrir leikinn, við þurftum að herða vörnina og standa saman. Við höfum verið að spila sem einstaklingar í vörninni í vetur, nú spiluðum við sem lið. Boltinn gekk líka vel í sókninni, vörnin small saman og við lékum sem lið. Ef einhver missti manninn sinn var næsti maður kominn í hjálpina. Þetta var liðsheildarsigur í kvöld, sem er eitthvað sem hefur vantað hjá okkur í síðustu leikjum."

"Valur tók yfir 20 sóknarfráköst gegn okkur í síðasta leik og það var stimplað í hausinn á okkur að fara í fráköstin og berjast. Það skila sér," sagði Sigrún um yfirburði KR í frákastabaráttunni.

"Þessi sigur gefur sjálfstraust en við getum ekki verið að fagna þessum sigri fram eftir nóttu, við eigum Keflavík sem er á toppnum í næsta leik og við þurfum að fara strax í að hugsa um þann leik," sagði Sigrún að lokum.


Bjarni: Lélegt frá byrjun
"Við komum ekki tilbúnar í þennan leik, ég skil ekki af hverju það var. Einbeitingin og baráttan var ekki til staðar eiginlega allan leikinn, Hittnin var léleg. Við klikkum úr 12 eða 13 sniðskotum og það segir mér að þetta hafa við einbeitingarleysi og ekkert annað," sagði Bjarni Magnússon þjálfari Hauka eftir leikinn.

"Leikurinn í Keflavík á ekki sitja í okkur. Við spiluðum á nokkuð mörgum mönnum þar og það er engin þreyta í liðinu eftir þann leik. Við töpuðum honum og hefðum því átt að koma tilbúnar í þennan leik. Við fengum engin stig þó við höfum staðið í þeim og þess vegna er ég mjög óánægður með það hvernig við komum inn í þennan leik."

"Við héngum í þeim þarna í byrjun en það er samt margt sem ég var óánægur með þá. Ég var mjög óánægður með varnarleikinn í byrjun en þær voru bara ekki að setja auðveld skot ofan í. Frá fyrstu mínútu var varnarleikurinn ekki góður. Við náðum að pikka hann aðeins upp en sóknarleikurinn var slakur í kvöld."

"Það var einn leikmaður sem hélt okkur á floti í fyrri hálfleik, aðrir voru ekki með sóknarlega og í seinni hálfleik vorum við ekki nógu grimmar og við þurfum að laga það. Við förum samt ekkert á taugum þó við höfum tapað þessum leik," sagði Bjarni að lokum.

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 25. maí. 2012 19:15

Kobe Bryant í liði ársins í tíunda skiptið á ferlinum

Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, var valinn í lið ársins í NBA-deildinni í tíund...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 18:57

Stelpurnar unnu þær dönsku í spennuleik - bronsið í höfn

Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Danmörku, 72-67, í þriðja leik sínum á N...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 10:41

Stórt tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag 80-44 gegn Svíum á Norðurlandamóti...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 09:00

Miami Heat í úrslit Austurdeildar | Wade fór á kostum

Miami Heat leikur til úrslita í Austurdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik eftir 105- 9...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Umfjöllun og viðtöl: KR - Haukar 72-54