Umfjöllun og viðtöl: Keflavík – KR 95-83

Vísir Körfubolti 13. febrúar 2012 19:21
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík – KR 95-83
Mynd/Stefán
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar:
Keflvíkingar komust upp í 2. sætið Iceland Express deildar karla eftir tólf stiga sigur á KR, 95-83, í Toyotahöllinni í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar lögðu grunninn að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta sem þeir unnu 35-17.

Jarryd Cole var með 35 stig og 16 fráköst fyrir keflavík og Magnús Þór Gunnarsson skoraði 19 stig og gaf 7 stoðsendingar. Dejan Sencanski skoraði 25 stig fyrir KR og Robert Ferguson var með 24 stig og 10 fráköst.

Gestirnir úr Vesturbænum komu betur stemmdir til leiks í Keflavík í kvöld. Josh Brown setti þriggja stiga körfu og kom KR ellefu stigum yfir 11-22 og röndóttir í góðum málum.

Þá var eins og Keflvíkingar vöknuðu loksins. Þeir beittu pressuvörn með góðum árangri og tókst nokkrum sinnum að koma í veg fyrir að KR-ingar næðu skoti áður en skotklukkan rann út. KR komst ekkert áleiðis, Keflavík skoraði tólf stig í röð og komst yfir 23-22.

Eftir þetta var nokkuð jafnvægi í leiknum en gestirnir leiddu með fjórum í hálfleik 31-35. Athygli vakti skelfileg nýting heimamanna fyrir utan þriggja stiga línuna en aðeins eitt af fyrstu þrettán skotum þeirra fyrir utan rataði ofan í.

Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti. Þeir áttu meðal annars þrjár þriggja stiga sóknir í röð og komust yfir 45-43. Þegar þeir komu enn einu sinni í veg fyrir að KR næði skoti áður en skotklukkan rynni út, við mikinn fögnuð heimamanna, tók Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, leikhlé.

Leikhléið virtist nýtast heimamönnum betur ef eitthvað var. Þeir bættu í forskotið, röðuðu niður stigum og misstu varla skot. Þeir skoruðu 35 stig í áður en leikhlutinn var úti og höfðu tólf stiga forskot í lok hans 66-54.

Þrátt fyrir að fjórði leikhluti væri mun jafnari komust KR-ingar aldrei nálægt heimamönnum. Þeir héldu öruggri forystu til loka og unnu sannfærandi sigur 95-83.

Hjá heimamönnum var Jarryd Cole sérstaklega atkvæðamikill með 33 stig og 16 fráköst. Annars unnu leikmenn Keflavíkur vel fyrir hvorn annan í sókn sem vörn og var betri dreifing á framlagi leikmanna þeirra hvort sem má lesa það út úr tölfræðinni eða ekki.

Hjá KR-ingum mættu tveir leikmenn til leiks, þeir Dejan Sencanski og Robert Ferguson. Sérstaklega kom lítið út úr leikstjórnanda KR Joshua Brown sem komst aldrei inn í leikinn. Ekki aðeins skoraði hann lítið heldur tapaði hann einnig boltanum átta sinnum í leiknum.

Keflavík-KR 95-83 (17-22, 14-15, 35-17, 29-29)


Keflavík: Jarryd Cole 35/16 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 19/7 stoðsendingar, Charles Michael Parker 15, Kristoffer Douse 12/6 fráköst, Almar Stefán Guðbrandsson 7, Valur Orri Valsson 5/5 stoðsendingar, Halldór Örn Halldórsson 2.

KR: Dejan Sencanski 25/4 fráköst, Robert Lavon Ferguson 24/10 fráköst/3 varin skot, Joshua Brown 10/5 fráköst/6 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 6, Martin Hermannsson 4, Finnur Atli Magnusson 4, Skarphéðinn Freyr Ingason 4/7 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 3, Björn Kristjánsson 2, Emil Þór Jóhannsson 1/4 fráköst.


Hrafn Kristjáns: Tóm vitleysa að nota Joshua Brown
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, rýndi í tölfræði leiksins áður en hann gaf sig á tal við undirritaðan.

„Við töpuðum boltanum 22 sinnum. En tölfræðin sem ræður mestu um þetta er að við leyfðum þeim að skora 62 stig í einum hálfleik. Örugglega eitthvað eftir tapaða bolta en aðallega með lélegum varnarleik," sagði Hrafn.

Dejan Sencanski og Robert Ferguson stóðu langt upp úr í leik gestanna og vakti framlag Joshua Brown sérstaklega athygli. Hann skoraði aðeins tíu stig, flest í fjórða leikhluta þegar leikurinn var tapaður og tapaði auk þess boltanum átta sinnum.

"Hann er náttúrulega meiddur. Það var örugglega tóm vitleysa að nota hann svona mikið. Planið var að pína hann í gegnum þennan leik og ná honum svo góðum á nokkrum dögum. Hann komst ekki framhjá einum einasta manni og því fór sem fór," sagði Hrafn en benti á að Brown hefði endilega viljað láta reyna á að spila.

Hrafn sagði að sér hefði fundist liðið missa dampinn þegar forystan tapaðist í fyrri hálfleiknum. Svo hefði framlag bekksins verið lítið. KR-ingar fengu svo dæmda á sig tæknivillu þegar Hrafni fannst liðið vera að fá meðbyr.

„Maggi (Magnús Gunnarsson) tekur þrjú eða fjögur skref með boltann og leikmenn stóðu upp og misstu eitthvað út úr sér. Þetta var bara svo hræðilega augljóst að það var skiljanlegt að menn misstu eitthvað út úr sér," sagði Hrafn.


Magnús Gunnars: Dómararnir með mig í vasanum
Keflvíkingar, sem leika um næstu helgi í bikarúrslitum, töpuðu óvænt gegn Haukum í síðasta deildarleik. Þeir ætluðu greinilega ekki að láta það henda aftur.

„Það var bikarblús hjá okkur á móti Haukum. Þjálfarinn lamdi okkur niður á jörðina og við hlustuðum á hann. Eins og ég hef sagt áður þá sigrum við hvaða lið sem er ef við gerum það. Við sýndum það í seinni hálfleiknum þegar við spiluðum hörkugóða vörn,“ sagði Magnús.

Keflvíkingar hittu úr einu af þrettán þriggja stiga skotum í fyrri hálfleik. Fyrsta skot Magnúsar snerti ekki einu sinni hringinn.

„Menn eru náttúrulega bara í buxunum á mér. Ég er að taka erfið skot sem ég á ekki að vera að gera. Ég á að láta leikinn koma til mín. Ég held að af öllum mönnum hafi Kris Douse sett fyrsta þristinn,“ sagði Magnús sem sagði góða vörn í þriðja leikhluta hafa gefið mönnum sjálfstraustið til að skjóta í seinni hálfleik. Í þriðja leikhluta virtust heimamenn ekki geta klikkað skoti.

„Menn fá sjálfstraust og eðlilegt að skotin fari niður. Það er oft nóg í körfubolta að hafa trú á því að skotin fari niður. Það tókst í þriðja leikhluta og megninu af fjórða þannig að við erum bara í fínum málum,“ sagði Magnús sáttur.

Í fyrsta leikhluta skoraði Magnús úr sniðskoti og fékk villu að auki. Hann skokkaði í kjölfarið framhjá aðstöðu blaðamanna og grínaðist með að aldrei hefði verið um villu að ræða. Spurning hvort Magnús sé með dómarana í vasanum?

„Nei. Ég er búinn að fá átta tæknivillur í vetur held ég. Þannig að ég held að dómararnir séu með mig alveg í vasanum. Ég sagði þetta af því ég hélt að þetta væri ekki villa en hann hefur séð þetta og dæmi villu,“ sagði Magnús.

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 25. maí. 2012 19:15

Kobe Bryant í liði ársins í tíunda skiptið á ferlinum

Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, var valinn í lið ársins í NBA-deildinni í tíund...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 18:57

Stelpurnar unnu þær dönsku í spennuleik - bronsið í höfn

Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Danmörku, 72-67, í þriðja leik sínum á N...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 10:41

Stórt tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag 80-44 gegn Svíum á Norðurlandamóti...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 09:00

Miami Heat í úrslit Austurdeildar | Wade fór á kostum

Miami Heat leikur til úrslita í Austurdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik eftir 105- 9...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Umfjöllun og viðtöl: Keflavík – KR 95-83