Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KFÍ 90-77

Vísir Körfubolti 05. febrúar 2012 19:46
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KFÍ 90-77
Mynd/Hjalti Vignisson
Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar:
Keflavík er komið í úrslit Poweradebikarsins eftir 90-77 sigur á KFÍ á heimavelli sínum í kvöld. KFÍ sem er á toppi 1. deildar gerði hvað það gat til að stríða Keflavík en að lokum var getumunurinn á liðunum of mikill og sigur Keflavíkur öruggur.

KFÍ hefur gert lítið að því að tapa körfuboltaleikjum í vetur, liðið hefur sigrað fjórtán af fimmtán leikjum sínum í 1. deildinni og mætti fullt sjálfstrausts gegn liði Keflavíkur sem er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.

Keflavík náði þó frumkvæðinu snemma í fyrsta leikhluta og var fimm stigum yfir að honum loknum 24-19. Keflavík hóf annan leikhluta með 11-2 sprett og var komið fjórtán stigum yfir 35-21 og þá var ekki aftur snúið. Enn munaði fjórtán stigum þegar flautað var til hálfleiks 49-35.

Leikmenn KFÍ verða ekki sakaðir um að gefast upp. Liðið barðist af krafti og náði 8-0 kafla um miðbik þriðja leikhluta þar sem Ísfirðingar minnkuðu muninn í 53-45. Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur tók þá leikhlé sem leikmenn hann brugðust við með sínum eigin 8-0 sprett og forystu Keflavíkur því aftur þægileg, 61-45.

Enn munaði fjórtán stigum á liðunum að loknum þriðja leikhluta 71-57.

Fjórði leikhluti einkenndist af því að úrslitin voru svo gott sem ráðin. KFÍ náði ekki að setja pressu á Keflavík og þrátt fyrir að berjast fyrir hverjum bolta hafði Keflavík lítið fyrir því að halda fengnum hlut.

Magnús Gunnarsson var atkvæðamestur Keflvíkinga með 25 stig, Charles Parker skoraði 20 og Jarryd Cole skoraði 14 auk þess að hirða 17 fráköst.

Christopher Miller-Williams skoraði 24 stig fyrir KFÍ og tók 11 fráköst, Ari Gylfason skoraði 13 og Edin Suljic 12.


Keflavík-KFÍ 90-77 (24-19, 25-16, 22-22, 19-20)

Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 25/6 fráköst, Charles Michael Parker 20/6 fráköst, Jarryd Cole 14/17 fráköst, Valur Orri Valsson 13/4 fráköst/8 stoðsendingar, Halldór Örn Halldórsson 10, Kristoffer Douse 3, Gunnar H. Stefánsson 3, Almar Stefán Guðbrandsson 2.

KFÍ: Christopher Miller-Williams 24/11 fráköst, Ari Gylfason 13/5 fráköst, Edin Suljic 12/6 fráköst, Kristján Andrésson 10/5 fráköst, Craig Schoen 9/6 fráköst/6 stoðsendingar, Jón H. Baldvinsson 7/7 fráköst, Hlynur Hreinsson 2.


Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KFÍ 90-77
Magnús: Vinnum alla ef við hlustum á þjálfarann
"KFÍ hlýtur að vera með mjög gott lið þar sem þeir eru komnir í undanúrslit bikars og við þurftum að hafa fyrir þessu en sigur er sigur," sagði Magnús Þór Gunnarsson stigahæsti leikmaður Keflavíkur í kvöld.

"Við vorum að bíða eftir þessum sprett sem kom í byrjun annars leikhluta. Við vissum að við værum með töluvert betra lið, með fullri virðingu fyrir þeim og vorum kannski værukærir í byrjun. Við héldum kannski að þetta kæmi að sjálfu sér þar sem þeir eru í 1. deild en þeir eru með hörkulið og við þurftum að hafa fyrir þessu en eftir að við slitum þá frá okkur þá var ekki aftur snúið."

"Þeir börðust eins og þeir gátu og við vorum ekki eins tilbúnir og við ætluðum okkur að vera en ég er mjög ánægður með að við erum komnir í höllina, það er langt síðan það hefur gerst," sagði Magnús sem sagði Sigurð þjálfara ekki hafa þurft að lesa yfir liðinu eftir 8-0 sprett KFÍ í þriðja leikhluta.

"Þegar hann tekur leikhléið þá vissum við að við vorum að gera rangt og hann þurfti ekkert að lesa yfir okkur heldur segja okkur hvað við þyrftum að gera og við gerum það og svörum góðum sprett þeirra. Ef við hlustum á þjálfarann þá vinnum við hvaða lið sem er, við þurfum bara að gera það," sagði Magnús.

"Við ætluðum að gefa meira í í fjórða leikhluta en við fórum frekar í að verja forskotið og það gekk," sagði Magnús að lokum.


Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KFÍ 90-77
Mynd/Heimasíða KFÍ
Pétur: Ætlum að vera topp fimm lið eftir þrjú ár
"Í heildina litið er ég mjög stoltur af strákunum. Við gáfum þeim leik. Við grófum okkur í svolitla holu í fyrri hálfleik, ég veit ekki hvað olli því, hvort það var stress eða hvað. Við erum með reynslulitla leikmenn en við komum til baka og gáfum þeim leik," sagði Pétur Sigurðsson þjálfari KFÍ að leiknum loknum.

"Keflavík er með mjög gott og vel þjálfað lið og það er erfitt að grafa sig upp úr 17 stiga holu gegn þeim. Við náðum að minnka muninn í átta stig en svo gerum við nokkur taktísk mistök, missum einbeitinguna á vissum stöðum þar sem við hefðum getað komið til baka ef við hefðum ætlað að gefa þessu alvöru leik en það er alltaf erfitt að elta svona gott lið eins og Keflavík."

"Við eigum klárlega erindi í úrvalsdeildina. Við erum með mjög góðan mannskap og mjög gott prógram. Við æfum eins og atvinnumenn og ég er með mjög duglega stráka sem gefa sig alla í verkefnið. Á þessu tímabili vorum við að leita eftir einhverju í framhaldinu, við vorum ekki bara að horfa á þetta tímabil. Við erum að hugsa um framtíðina og stefnu að því að vera eitt af fimm bestu liðunum á Íslandi á næstu þremur árum," sagði Pétur ákveðinn að lokum.

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 25. maí. 2012 19:15

Kobe Bryant í liði ársins í tíunda skiptið á ferlinum

Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, var valinn í lið ársins í NBA-deildinni í tíund...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 18:57

Stelpurnar unnu þær dönsku í spennuleik - bronsið í höfn

Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Danmörku, 72-67, í þriðja leik sínum á N...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 10:41

Stórt tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag 80-44 gegn Svíum á Norðurlandamóti...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 09:00

Miami Heat í úrslit Austurdeildar | Wade fór á kostum

Miami Heat leikur til úrslita í Austurdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik eftir 105- 9...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KFÍ 90-77