LAUGARDAGUR 18. MAÍ NÝJAST 06:00

Garðsmennirnir kláruðu leikinn

SPORT

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 26-18 | Aron Rafn í miklu stuði

Vísir Handbolti 12. mars 2012 14:19
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 26-18 | Aron Rafn í miklu stuði
MYND/VALLI
Stefán Árni Pálsson í Schenkerhöllinni á Ásvöllum skrifar:
Fjögurra leikja sigurganga Akureyringa í N1 deild karla í handbolta endaði í kvöld þegar Haukar unnu átta marka sigur á Akureyri, 26-18, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum.

Haukar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 10-7, en tóku síðan öll völd í seinni hálfleiknum þar sem náðu átta marka forskoti, 22-14, þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Aron Rafn Eðvarðsson átti enn einn stórleikinn í marki Hauka en hann varði alls 23 skot í kvöld eða 56 prósent skota sem komu á hann. Sveinn Þorgeirsson og Stefán Rafn Sigurmannsson voru markahæstir með sex mörk.

Fyrri hálfleikur fór rólega af stað og voru liðin virkilega lengi í gang. Heimamenn í Haukum vorum aftur á móti alltaf einu skrefi á undan. Liðin léku gríðarlega harðann varnarleik og menn fengu heldur betur að finna fyrir því.

Það sem skildi liðin að var í raun frammistaða Arons Rafns Eðvarðssonar í marki Haukar en hann fór gjörsamlega á kostum í hálfleiknum og varði 12 skot eða 67% allra skota sem komu á markið. Staðan var 10-7 í hálfleik og liðin þurftu í raun bæði að spýta í lófana fyrir seinnihálfleikinn.

Akureyri minnkaði muninn í tvö mörk í upphafi seinni hálfleiks, 11-9, en þá komu þrjú Haukamörk í röð og leikur norðanmanna hrundi endanlega. Haukar komust í 17-12 og 22-14. Haukarnir héldu síðan átta marka forskoti til leiksloka. Akureyringar fóru að skjóta illa á Aron í markinu og virtust hreinlega vera hræddir við þann hávaxna.

Sóknarleikur Hauka fór vel í gang og náðu þeir að keyra hraðan upp með Frey Brynjarsson í broddi fylkinga. Haukar hafa verið í smá lægð eftir að liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn en þeirri lægð lauk í kvöld. Akureyringar þurfa að hugsa sinn gang eftir frammistöðuna í kvöld og skoða þá sérstaklega sóknarleik liðsins og skotnýtinguna.



Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 26-18 | Aron Rafn í miklu stuði
MYND/VALLI
Aron Rafn: Ég gef landsliðssætið ekki svo létt frá mér
„Þetta var mjög þægilegur sigur gegn sterki liði Akureyri," sagði Aron Rafn Eðvarðsson, maður leiksins, eftir sigurinn í kvöld.

„Ég man hreinlega ekki hvenær Akureyri tapaði síðast leik og því var þetta rosalega sterkur sigur."

„Það var sérstaklega mikilvægt að vinna þennan leik eftir hreint hörmulega frammistöðu í síðustu
umferð gegn Gróttu. Við urðum bara að sýna og sanna fyrir okkar áhorfendum hversu góðir við erum."

„Það þarf engan stærðfræðing til að segja manni það að þegar lið spila góða vörn þá kemur markvarslan, ég var með frábæra vörn fyrir framan mig í kvöld."

Hægt er að sjá viðtalið við Aron hér að ofan.


Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 26-18 | Aron Rafn í miklu stuði
MYND/VALLI
Atli: Þessi frammistaða var til skammar
„Við vörum með ótrúlega mörg dauðafæri í þessum leik, ég hef sjaldan orðið vitni af öðru eins," sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir ósigurinn í kvöld.

„Síðan fór varnarleikur okkar að verða slakur í síðari hálfleiknum og við í raun komumst aldrei í takt við þennan leik."

„Þetta er mjög grátlegt því liðið hefur verið að spila frábærlega að undanförnu og slæmt að fá svona skell eins og í kvöld.Frammistaðan í kvöld var fyrir neðan allar hellur. Menn voru síðan að svekkja sig mikið í seinni hálfleiknum og það fór að hafa áhrif á spilamennskuna hjá strákunum. Það hlutur sem við verðum að vinna í og drengirnir verða hreinlega að fjarlægja slíkan hugsunarhátt."

„Ef menn misnota færi þá verða þeir að bæta það upp í næstu sókn, ekki missa hausinn og þar með einbeitinguna. Það eru þrír úrslitaleikir eftir hjá okkur og við verðum að líta þannig á hlutina," sagðin Atli að lokum.

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Handbolti 17. maí 2013 20:32

Naumt tap í fyrri bronsleiknum

Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin... Meira
Handbolti 17. maí 2013 19:24

Arnór með fínan leik í flottum útisigri

Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26. Meira
Handbolti 17. maí 2013 16:21

Ólafur kvaddur í Laugardalshöllinni

Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni. Meira
Handbolti 17. maí 2013 08:00

Framtíð mín er á Íslandi

Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands. Meira
Handbolti 17. maí 2013 07:30

Dröfn í ÍBV

ÍBV hefur fundið arftaka Florentinu Stanciu því Dröfn Haraldsdóttir, leikmaður FH, samdi við liðið í fyrradag. Meira
Handbolti 16. maí 2013 12:15

Ólafur hafnaði danska landsliðinu

Ólafur Stefánsson staðfesti við danska fjölmiðla í dag að honum hafi boðist að taka við þjálfun danska karlalandsliðsins í handbolta. Meira
Handbolti 16. maí 2013 08:00

Kóngurinn í Kiel

Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st... Meira
Handbolti 15. maí 2013 19:45

Aron klæddi hundinn sinn upp í tilefni titilsins

Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ... Meira
Handbolti 15. maí 2013 19:00

Marklínutækni í handboltanum

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hyggst nota svokallaða marklínutækni á leikjum í úrslitahelgi EHF-bikarsins um helgina. Meira
Handbolti 15. maí 2013 16:45

Grosswallstadt fékk ekki keppnisleyfi

Þýska úrvalsdeildarfélagið Grosswallstadt, lið Sverre Jakobssonar og Rúnars Kárasonar, fékk ekki úthlutað keppnisleyfi fyrir næsta tímabil. Meira
Handbolti 15. maí 2013 12:15

Aron hlaut yfirburðakosningu

Aron Pálmarsson var valinn leikmaður aprílmánaðar á heimasíðu þýsku meistaranna í THW Kiel. Meira
Handbolti 15. maí 2013 08:15

Íslenskir liðsfélagar þýskir meistarar í fyrsta sinn í 35 ár

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen,... Meira
Handbolti 14. maí 2013 22:45

Alfreð búinn að fara illa með Guðmund í vetur

Alfreð Gíslason gerði Kiel að þýskum meisturum í handbolta í fjórða sinn á fimm árum í kvöld þegar liðið vann sex marka sigur á Rhein-Neckar Löwen í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Meira
Handbolti 14. maí 2013 22:37

Alfreð lenti í bjórsturtu í miðju sjónvarpsviðtali

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér þýska meistaratitilinn annað árið í röð í kvöld með því að vinna öruggan og sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen. Alfreð lenti í bjórstur... Meira
Handbolti 14. maí 2013 19:41

Alfreð, Aron og Guðjón Valur þýskir meistarar með Kiel

Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fim... Meira
Handbolti 14. maí 2013 18:44

Refirnir hans Dags upp í þriðja sætið

Füchse Berlin komst upp í 3. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir þriggja marka heimasigur á SC Magdeburg í kvöld, 29-26. Füchse Berlin hefur einu stigi meira en Flensburg-Handewitt sem á l... Meira
Handbolti 14. maí 2013 14:00

Er með nagandi samviskubit

Handboltaparið Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur náð að spila bæði með sterkum liðum í Danmörku og Þýskalandi undanfarin ár. Nú eru þau í Danmörku þar sem Þórey Rósa varð Evrópume... Meira
Handbolti 14. maí 2013 13:45

Fögnuðum í sautján klukkutíma rútuferð

Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir urðu um helgina Evrópumeistarar í handbolta kvenna eftir sigur á franska liðinu Metz í EHF-bikarkeppninni. Liðið getur einnig orðið danskur meistari í næstu ... Meira
Handbolti 14. maí 2013 12:45

Titillinn í húfi þegar Alfreð og Guðmundur mætast

Kiel getur orðið Þýskalandsmeistari í handbolta í átjánda skipti takist liðinu að leggja Rhein-Neckar Löwen að velli á heimavelli sínum í kvöld. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Meira
Handbolti 14. maí 2013 11:26

Stefán fékk leyfi hjá dótturinni og verður áfram

Stefán Arnarsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við Val og mun því áfram stýra liðinu í N1-deild kvenna. Hann ætlaði að hætta eftir nýliðið tímabil. Meira
Handbolti 13. maí 2013 15:15

Florentina á leið frá ÍBV

Allar líkur eru á því að Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, muni yfirgefa herbúðir félagsins nú í sumar. Meira
Handbolti 13. maí 2013 10:00

Þórir spilar um titilinn

Kielce lenti ekki í vandræðum með andstæðing sinn í undanúrslitum úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Meira
Handbolti 13. maí 2013 06:30

Sú efnilegasta fyrir fimmtán árum er sú besta í ár

Framarinn Jóhann Gunnar Einarsson og Valskonan Dagný Skúladóttir voru valin Handknattleiksfólk ársins á Lokahófi HSÍ um helgina en bæði voru þau að fá þessi verðlaun í fyrsta sinn. Hrafnhildur Hanna Þ... Meira
Handbolti 12. maí 2013 18:03

Þórey Rósa og Rut Evrópumeistarar

Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir urðu í kvöld Evrópumeistarar með danska liðinu Team Tvis Holstebro eftir 33-28 útisigur á Metz Handball í seinni leik liðanna í úrslitum EHF-bikarsins. Meira
Handbolti 12. maí 2013 16:35

Ólafur Bjarki flottur í sigri Emsdetten

Íslendingaliðið Emsdetten vann fínan sigur, 28-23, á Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni í handknattleik. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Handbolti / Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 26-18 | Aron Rafn í miklu stuði
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000