Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Tindastóll 106-87

Vísir Körfubolti 02. febrúar 2012 20:57
Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Tindastóll 106-87
Stefán Hirst Friðriksson skrifar:
Fjölnismenn unnu í kvöld öruggan nítján stiga sigur, 106-87 á slöku liði Tindastóls. Leikurinn var gríðarlega þýðingarmikill fyrir bæði lið og þá einna helst fyrir Fjölnismenn því að þeir urðu að vinna hér í kvöld ef þeir ætluðu að halda vonum sínum um sæti í úrslitakeppninni á lífi. Fjölnismenn fóru á kostum í kvöld og áttu Stólarnir aldrei möguleika í leiknum.

Fjölnir byrjaði leikinn af miklum krafti og komust þeir í 13-0 strax í upphafi leiks. Fjölnismönnum héldu engin bönd en þeir fóru gjörsamlega á kostum í sóknarleiknum og voru þeir komnir með nítján stiga forystu, 23-7 um miðjan leikhlutann. Stólarnir náðu aðeins að rétta úr kútnum á næstu mínútum en Fjölnismenn svöruðu undir lok leikhlutans og leiddu 36-21, þegar leikhlutinn var úti. Fjölnismenn voru með ótrúlega skotnýtingu í fyrsta leikhluta en þeir skutu í kringum sjötíu prósent í leikhlutanum. Nathan Walkup, leikmaður Fjölnis fór fyrir sínum mönnum en hann var kominn með 12 stig eftir fyrsta leikhluta.

Fjölnismenn héldu áfram að fara á kostum og byrjuðu þeir annan leikhluta eins og þann fyrsta. Þeir voru komnir í tuttugu stiga forystu, 46-26 þegar leikhlutinn var tæplega hálfnaður. Nokkuð jafnræði var liðunum á næstu mínutum en Fjölnismenn héldu Stólunum þó alltaf langt frá sér og voru með örugga 18 stiga forystu, 55-37 þegar flautað var til leikhlés í hálfleik sem var algjör eign heimamanna. Leikmenn Tindastóls voru hreinlega ekki mættir til leiks og virkaði þetta áreynslulítið fyrir Fjölnismenn.

Bæði lið voru róleg í upphafi síðari hálfleiks og héldu Fjölnismenn sömu forystu í upphafi hálfleiksins. Stólarnir voru þó ekki búnir að gefast upp en þeirra leikur stórbatnaði um miðjan leikhlutann. Þeir fóru loksins að spila almennilega vörn ásamt því að sóknarleikurinn var betri. Þeim tókst að skera forystuna niður í tíu stig áður en að Fjölnismenn náðu að svara. Staðan 76-64 fyrir fjórða leikhluta og í fyrsta skipti í leiknum komin smá spenna í þetta.

Lítið varð úr áhlaupi Tindastóls því að Fjölnismenn byrjuðu fjórða leikhlutann mun betur og voru aftur komnir í sextan stiga forystu strax í upphafi leikhlutans. Fjölnismenn héldu Stólunum frá sér og unnu að lokum öruggan nítján stiga sigur, 106-87 .

Hjá Fjölni voru margir sem lögðu sitt að mörkum en var það helst Nathan Ray Walkup, en hann bauð uppá sýningu í sókninni og réðu Stólarnir lítið við hann. Einnig áttu Jón Sverrison og Arnþór Freyr Guðmundsson mjög góða leiki í liði Fjölnis ásamt því að Calvin O´Neal spilaði vel.

Það var fáa jákvæða punkta að finna í liði Tindastóls en helst var það þó Þröstur Leó Jóhannsson sem átti ágætis leik.

Nathan Wilkup: Frábær leikur

Nathan Ray Wilkup, leikmaður Fjölnis fór á kostum fyrir sitt lið í kvöld en hann skoraði 35 stig ásamt því að taka tólf fráköst. Hann var að vonum ánægður í lok leiks

„Við spiluðum mjög vel í þessum leik. Við byrjuðum virkilega vel og það auðveldaði okkur framhaldið. Þeir eru með góða leikmenn en þetta kvöld var um okkur. Við vorum virkilega góðir og er ég ánægður með þennan leik," sagði Nathan.

Aðspurður um framhaldið sagði hann að þeirra markmið væru óbreytt en það væri að komast í úrslitakeppnina: „Við ætluðum okkur frá byrjun að komast í úrslitakeppnina og við stöndum við það markmið. Við ætlum að komast þangað og sýna fólki að við séu með hæfileikaríkt lið. Við getum vel strítt stóru liðunum ef við komumst þangað," sagði Walkup að lokum.

Örvar Þór: Þetta eru bara töffarar

„Þetta er aldrei auðvelt en við komum gríðarlega tilbúnir til leiks og byrjuðum leikinn frábærlega. Sú byrjun auðveldaði okkur svo framhaldið en við vorum að spila með svo miklu sjálfstrausti að ég vissi að það var ekki séns að við myndum tapa þessum leik."

Við vorum með yfirhöndina allan leikinn en Tindastóll eru með frábært lið þannig að ég vissi að þeir myndu á einhverjum tímapunkti koma með áhlaup. Strákarnir svöruðu þeim frábærlega og þessir strákar eru bara töffarar," sagði Örvar að lokum.

Bárður: Lítur út eins og menn séu saddir

„Þetta var virkilega lélegur leikur af okkur hálfu. Eiginlega alveg glataður. Miðað við hvernig við erum búnir að spila síðustu tvo leiki þá sýnist mér það á öllu að menn séu orðnir saddir. Við vorum búnir að standa okkur frábærlega í deildinni fyrir þessa tvo leiki en svo gerist eitthvað sem ég get ekki útskýrt. Við erum að eiga flottar æfingar og liðið lítur vel út en þessir tveir leikir eru bara til skammar. Menn hljóta bara að vera orðnir saddir og við förum ekki í úrslitakeppnina ef við ætlum að spila svona," sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari Tindastóls í lok leiks.

Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 25. maí. 2012 19:15

Kobe Bryant í liði ársins í tíunda skiptið á ferlinum

Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, var valinn í lið ársins í NBA-deildinni í tíund...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 18:57

Stelpurnar unnu þær dönsku í spennuleik - bronsið í höfn

Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Danmörku, 72-67, í þriðja leik sínum á N...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 10:41

Stórt tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag 80-44 gegn Svíum á Norðurlandamóti...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 09:00

Miami Heat í úrslit Austurdeildar | Wade fór á kostum

Miami Heat leikur til úrslita í Austurdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik eftir 105- 9...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Tindastóll 106-87