FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ NÝJAST 10:00

Neymar þarf að bæta á sig

SPORT

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 1-1

Vísir Íslenski boltinn 13. maí 2012 17:06
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 1-1
MYND/STEFÁN
Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar:

Breiðablik og Fylkir gerðu jafntefli, 1-1, gegn Fylki í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu á Kópavogsvelli í kvöld. Rakel Hönnudóttir skoraði eina mark Blika í leiknum en Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir gerði mark Fylkis.

Blikar voru sterkari aðilinn til að byrja með og réðum ferðinni í upphafi fyrri hálfleiks en fyrsta skot leiksins átti Þordís Hrönn Sigfúsdóttir, leikmaður Breiðabliks, eftir tæplega tuttugu mínútna leik en boltinn fór rétt yfir.

Eftir rúmlega hálftímaleik átti Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður Blika, fínt skot á markið en varnarmaður Fylkis náði að bjarga á marklínu. Hvorugu liðinu tókst að koma boltanum í netið í fyrri hálfleiknum og því var staðan 0-0 í hálfleik.

Fylkir byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og komust í algjört dauðafæri þegar tæplega tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Þá fór skot Önnu B. Bergþórsdóttur í þverslána, stórhættulegt. Strax í næstu sókn fengu Blikar hornspyrnu sem Fanndís Friðriksdóttir tók en spyrnan fór inn í miðjan vítateig gestanna þar sem Rakel Hönnudóttir, leikmaður Breiðabliks, gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum viðstöðulaust í netið. Breiðablik því komið 1-0 yfir.

Á 65. mínútu átti Rakel Hönnudóttir síðan frábært skot sem Íris Dögg Gunnarsdóttir varði vel í markinu hjá Fylki. Gestirnir voru samt sem áður ekki tilbúnar að gefast upp og um fimmtán mínútum fyrir leikslok náði fyrirliðin Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir að jafna metin fyrir Fylki.

Margrét Björg Ástvaldsdóttir átti frábæra hornspyrnu sem rataði til Hrafnhildar sem náði að stýra boltanum í netið.

Niðurstaðan því 1-1 jafntefli og það sést greinilega eftir úrslit fyrstu umferðar að deildin gæti orðið meira spennandi í ár en undanfarin tímabil.

Önnur úrslit í kvöld:

Afturelding-FH 1-1
Kristín Tryggvadóttir - Guðrún Bentína Frímannsdóttir (víti)

Selfoss-KR 3-3
Valorie O'Brien 2, Eva Lind Elíasdóttir - Ólöf Ísberg, Freyja Viðarsdóttir, Anna Garðarsdóttir.

Upplýsingar um markaskorara fengnir frá úrslit.net.


Jón Páll: Mig langaði í öll stigin

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 1-1
MYND/STEFÁN

„Ég hefði kannski verið sáttur með stigið í gær en eins og leikurinn spilaðist þá vildi ég þau öll," sagði Jón Páll Pálmason, þjálfari Fylkis, eftir leikinn í kvöld.

„Við stóðum okkur vel og áttum þess vegna skilið að vinna leikinn og því er ég sáttur með stelpurnar."

„Blikarnir spiluðu undan miklum vindi í fyrri hálfleik og mér fannst við verjast frábærlega en þær náðu bara einu skoti á markið. Þær koma síðan rosalega sterkar inn í síðari hálfleikinn og skora frábært mark. Eftir það jafnaðist leikurinn mikið og við áttum sannarlega skilið að jafna metin."

„Við förum í alla leiki til þess að vinna þá og það eigum við eftir að gera í næstu umferð gegn Stjörnunni."

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Jón hér að ofan.


Hlynur: Þetta eru ekki nægilega góð úrslit

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 1-1
MYND/STEFÁN

„Við erum bara vonsviknar með okkar leik," sagði Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Breiðabliks, eftir jafnteflið í dag.

„Við ætluðum okkur sigur í kvöld en því miður gekk það ekki upp. Við lögðum leikinn þannig að við ætluðum að vera meira með boltann og það tókst en við náum ekki að skapa okkur nægilega mörg færi."

„Þær skora eftir fast leikatriði sem ég er rosalega ósáttur með. Fylkir fékk rétt áður aukaspyrnu sem átti aldrei að verða og gjörsamlega fáránlegur dómur. Uppúr því fá þær hornspyrnu sem þeir ná að nýta sér."

„Við fenguð auðvita algjört dauðafæri í lokin og þess vegna erum við virkilega vonsvikin með þessi úrslit."

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Hlyn með því að ýta hér.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 20. júní 2013 07:00

Í námi með Giggs og Neville

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sækir sér nú þjálfaramenntun hjá enska knattspyrnusambandinu en meðal samnemenda hans eru þekkt nöfn úr enska boltanum. "Bara venjulegir gaurar,“ segir Rúnar um þ... Meira
Íslenski boltinn 20. júní 2013 06:00

Ég fékk blóð á tennurnar

Hólmbert Aron Friðjónsson, leikmaður Fram, hefur verið að finna sig einstaklega vel á tímabilinu og virðist loksins vera að springa út. Leikmaðurinn skoraði þrjú mörk gegn Þór í 7. umferð Pepsi-deilda... Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 11:40

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur Ó.-Fram 5-6

Framarar lögðu Víkinga að velli í vítaspyrnukeppni eftir frábærann háspennu-bikarleik í Ólafsvík í kvöld. Staðan eftir venjulegann leiktíma og framlengingu var 1-1 en eftir að hinn 19 ára gamli Alfreð... Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 11:39

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Leiknir - KR 0-3

KR var ekki í neinum vandræðum með Leikni í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu en þeir svarthvítu unnu öruggan, 3-0, sigur á Leiknisvellinum. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 11:42

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R - Tindastóll 2-1

Reykjavíkur Víkingar eru komnir í átta liða úrslit Borgunarbikarsins en liðið vann nauman sigur á Tindastóli í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 11:43

Öll úrslit kvöldsins í Borgunarbikarnum

Sex lið eru búin að tryggja sér farseðilinn í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla. Fimm farseðlar voru gefnir út í kvöld en ÍBV fékk þann fyrsta fyrir tæpri viku síðan. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 16:46

Formaður ÍA: Þorvaldur hefur upp á margt að bjóða

Ingi Fannar Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar ÍA, er hæstánægður með að ÍA hafi náð að landa samningi við Þorvald Örlygsson. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 16:11

Þorvaldur gerði ótímabundinn samning við ÍA

Skagamenn eru búnir að ráða Þorvald Örlygsson sem þjálfara liðsins. Hann tekur við starfinu af Þórði Þórðarsyni sem hætti á mánudag. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 15:17

Kristján: Það vantaði nýja rödd

Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn eftirmaður Zoran Daníel Ljubicic sem var rekinn sem þjálfari Keflavíkur í gær. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 13:23

Almar tók við af Jóni Rúnari

Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, er nýr formaður Íslensks toppfótbolta en aðalfundur félagsins var haldinn í gær. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 12:20

Kristján tekur við Keflavík

Kristján Guðmundsson tekur við þjálfun Keflavíkur í Pepsi-deild karla en Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar félagsins, staðfesti það við Vísi í dag. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 12:13

Zoran rekinn frá Keflavík

Zoran Daníel Ljubicic hefur verið rekinn sem þjálfari Keflavíkur í Pepsi-deild karla, en Keflvíkingar sendu frá sér tilkynningu þess efnis í morgun. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 11:29

Ummæli Heimis kærð til aganefndar

Ummælin sem varaformaður knattspyrnudeildar Víkings lét falla um Leikni Ágústsson knattspyrnudómara hafa verið kærð til Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 11:24

Þorvaldur álitlegur kostur fyrir ÍA

Þórður Guðjónsson segir að félaginu hafi borist fjölda umsókna um þjálfarastarfið eftir að Þórður Þórðarson hætti í gær. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 07:00

Þjálfari óskast hjá ÍA

Þórður Þórðarson hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari ÍA í knattspyrnu en liðið hefur aðeins þrjú stig eftir sjö umferðir í Pepsi-deild karla. Stjórn knattspyrnudeildar ÍA leitar nú að arftaka. P... Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 06:45

Hver tekur við liði ÍA?

Það er mikið spáð í það hver muni taka við liði ÍA fyrst Þórður Þórðarson er hættur. Skagamenn buðu Pétri Péturssyni starfið en hann afþakkaði það. Meira
Íslenski boltinn 19. júní 2013 06:30

Nýr gervigrasvöllur algjör bylting

KA-menn geta nú æft á eigin æfingasvæði allan ársins hring. Hefur áður verið nothæft í átta vikur á ári. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 22:45

Uppgjör 7. umferðarinnar | Myndband

Þeir fimm leikir sem fóru fram í 7. umferð Pepsi-deild karla á sunnudagskvöldið voru gerðir upp í Pepsi-mörkunum á sunnudagskvöldið. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 22:00

Voru þetta sjálfsmörk? | Myndband

Tvö mörk voru skráð sem sjálfsmörk á leikjum sunnudagsins í Pepsi-deild karla. Myndbönd af þeim má sjá hér. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 16:52

Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Valur - ÍBV 1-1

Valur og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik sjöundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór fram á Vodafone-vellinum en Eyjamenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins og Valsmenn ... Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 20:44

Hann fer í þessa tæklingu eins og fljúgandi skítakamar

"Þetta voru mjög sanngjörn úrslit,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn í kvöld. ‚ÍBV gerði, 1-1, jafntefli við Val á Vodafone-vellinum í lokaleik sjöundu umferð Pepsi-... Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 17:33

Edda og Ólína á leið heim | Lítið æft hjá Chelsea

Landsliðskonurnar Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðrún Viðarsdóttir eru allt annað en sáttar hjá Chelsea og vilja nú losna frá félaginu. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 16:00

Pétur Pétursson hafnaði ÍA | Þórður tekur ekki við

Þórður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri ÍA, fékk að vita af því í gærkvöldi að Skagaliðið væri orðið þjálfaralaust en Þórður Þórðarson, fyrrum þjálfari liðsins, lét þá af störfum. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 15:11

Veðjuðu menn á rangan hest á Skaganum? | Myndband

Slæmt gengi ÍA var til umræðu í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport á sunnudagskvöld en í dag var tilkynnt að Þórður Þórðarson væri hættur sem þjálfari liðsins. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 14:52

Þórður hættur með ÍA

Þórður Þórðarson er hættur sem þjálfari ÍA í Pepsi-deild karla. Hann ákvað að stíga sjálfur til hliðar, eftir því sem kemur fram í yfirlýsingu frá ÍA. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 1-1
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000