Hjalti Þór Hreinsson í Höllinni á Akureyri skrifar:
Akureyri vann góðan og sannfærandi sigur á FH í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-26 sem var síst of stórt.
Akureyringar sigldu FH einfaldlega í kaf í fyrri hálfleik. Vörn Akureyrar var frábær með Guðlaug fremstan í flokki. Guðmundur Hólmar var einnig mjög góður. Sveinbjörn datt í stuð fyrir aftan þá og tók 11 skot í fyrri hálfleik. Vörnin sjálf varði einhver fjögur skot í hálfleiknum.
Sókn FH var mjög slök. Þeir áttu engin svör við vörn Akureyrar, og virkuðu algjörlega ráðalausir. Ragnar komst ekkert í takt við leikinn í skyttunni. Ólafur Gústafsson reyndi hvað hann gat en var lítið studdur af félögum sínum.
Sókn Akureyrar gekk mjög vel, þeir skoruðu sex mörk úr hraðaupphlaupum og átti ekki í neinum vandræðum með að opna vörn FH. Vörnin var reyndar afspyrnu slök, engin grimmd og engin samheldni.
Fyrir aftan hana var markvarslan nánast engin. Daníel varði eitt skot og Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson aðeins tvö. Akureyringar voru að skjóta mjög vel á markið.
Munurinn á liðunum var 9 mörk í hálfleik, staðan 20-11.
Leikurinn var litlu jafnari í seinni hálfleik. Það var ekki fyrr en í lokin sem FH spýtti í lófana og beit frá sér, Akureyri náði annars 10 marka forskoti.
Það var svipuð saga og í fyrri hálfleik og sigur Akureyrar aldrei í hættu. Bæði lið skiptu mikið inn á og minnkuðu gæði leiksins umtalsvert í lokin.
FH hafði ekki úthald í lokin þrátt fyrir ágæta baráttu en það skoraði þrjú síðustu mörk leiksins.
Oddur var frábær í liði Akureyrar en vörnin og Sveinbjörn unnu leikinn. Þegar liðið nær þessari vörn og markvörslu er það illviðráðanlegt. Ólafur Gústafsson spilaði kannski best FH, en náði sér samt ekki nógu vel á strik. Liðið á mikið inni og það skorti bæði upp á að vörn og sókn næðu sér á strik. Þá var markvarslan afar slök.
Akureyri er nú aðeins einu stigi á eftir FH þegar liðin eiga tvo leiki eftir og er í fínni stöðu til að komast í úrslitakeppnina.
Atli Hilmarsson: Nánast gallalaus fyrri hálfleikur "Þetta er allt annað lið. Ég lofaði því líka að allt annað lið myndi mæta hér í dag og við svo sannarlega spiluðum frábæran leik, fyrri hálfleikur nánast gallalaus. Það er oft erfitt að koma inn í hálfleikinn með svona stöðu, menn fara í það að halda en það var ekki ætlunin."
"Við föttuðum það bara allt of seint að þeir voru að stefna á innbyrðis stöðuna, áætlunin var bara að vinna leikinn enda bjóst ekki neinn við því að við færum að sigra með níu hér í kvöld. Fyrir mig er aðalatriðið að komast í úrslitakeppnina, ég hef trú á því að þetta kveiki það mikið í okkur að við förum á þetta flug áfram."
Oddur Gretarsson: Ógeðslega gaman "Við höfðum ógeðslega gaman af þessum leik og virkilega gaman að spila hér í kvöld eins og sást á liðinu og öllu húsinu, nema síðustu tíu mínúturnar þegar við fórum að slaka á, samt frábær sigur. Eftir síðasta leik á móti Haukum þar sem við vorum með alveg skelfilega skotnýtingu þá þurfti bara hver og einn að hugsa sinn gang."
"Bubbi tók okkur í smá fyrirlestur og við fórum vel í gegnum hvernig við vorum að skjóta og það hefur bara virkað vel. Við mættum vel undirbúnir í þennann leik og það sýndi sig bara, einbeittir frá fyrstu mínútu. Við þurfum að vinna allavega einn leik af því sem eftir er til að klára og fara í úrslitakeppnina, það er Fram næst á útivelli og það er bara annar úrslitaleikur þar sem hart verður barist." Einar Andri Einarsson: Erum í stórhættu á að komast ekki í úrslitakeppnina „Fyrstu 30 mínúturnar í leiknum eru alveg skelfilegar hjá okkur, en seinni hálfleikurinn er mjög góður og vinnum við hann með 5 mörkum. Við bara mættum ekki til leiks, Akureyringar voru frábærir í fyrri hálfleik, spiluðu frábæra sókn og náðu hraðaupphlaupum. Mér fannst við ágætir sóknarlega allan tímann, ef við hefðum fengið betri varnarleik þá hefðum við fengið fleiri hraðaupphlaup í kjölfarið en fyrst og fremst töpum við þessum leik í fyrri hálfleik á ömurlegum varnarleik."
FH-ingar mættu grimmari inn í seinni hálfleikinn, snérist umræðan um að stefna að því að minnka þetta niður í þrjú til að vera með betri innbyrðis viðureignir á FH?
„Við bentum þeim á það að við yrðum að koma þessu eins mikið niður og við gætum og fyrst og fremst að vinna seinni hálfleikinn, ná þessu niður í í það minnsta fjögur mörk var markmiðið. Það eru þrír leikir eftir í deildinni og allt undir, erum í stór hættu á að komast ekki í úrslitakeppni og það eru vonbrigði. Við eigum HK heima á föstudaginn og við þurfum heldur betur að mæta klárir í hann enda hreinn úrslitaleikur um það hvort liðið fer í úrslitakeppnina."
Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Kielce, lið Þóris Ólafssonar, er aðeins einum sigri frá pólska meistaratitlinum í handbolta en liðið er komið í 2-0 í úrslitarimmunni gegn Wisla Plock.
Meira
Rhein-Neckar Löwen undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vann á sunnudaginn EHF-bikarinn eftir 26-24 sigur á Nantes í Frakklandi. Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í ellefu ára sögu þess...
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Tvis Holstebro í 23-27 tapi gegn Midtjylland í fyrri úrslitaleik liðanna um danska meistaratitilinn.
Meira
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi.
Meira
Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag.
Meira
Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes.
Meira
Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin...
Meira
Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26.
Meira
Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni.
Meira
Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands.
Meira
Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st...
Meira
Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ...
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen,...
Meira
Alfreð Gíslason gerði Kiel að þýskum meisturum í handbolta í fjórða sinn á fimm árum í kvöld þegar liðið vann sex marka sigur á Rhein-Neckar Löwen í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar.
Meira
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér þýska meistaratitilinn annað árið í röð í kvöld með því að vinna öruggan og sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen. Alfreð lenti í bjórstur...
Meira
Kiel tryggði sér í kvöld þýska meistaratitilinn í handbolta eftir sannfærandi sex marka sigur á heimavelli á móti Guðmundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25. Kiel er með fim...
Meira