Spánn sigraði Ítalíu 4-0 í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins í kvöld og varð þar með fyrsta þjóðin til að vinna tvö Evrópumeistaramót í röð. Spánn sýndi allar sínar bestu hliðar í leiknum og var 2-0 yfir í hálfleik.
Spánverjar hófu leikinn af miklum krafti og voru mjög beinskeyttir strax í byrjun. David Silva skoraði á 14. mínútu og áður en fyrri hálfleikur var allur hafði Jordi Alba bætt við marki.
Hafi Ítalía átt einhverja von hvarf hún þegar varamaðurinn Thiago Motta þurfti að fara meiddur af leikvelli þegar enn var um hálftími eftir af leiknum en þá höfðu Ítalir notað allar þrjár skiptingar sínar.
Fernando Torres og Juan Mata, leikmenn Chelsea á Englandi, gerðu út um leikinn með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla þegar skammt var eftir og gulltryggðu sanngjarnan sigur.
Spánn skoraði tólf mörk og fékk á sig eitt í keppninni. Ítalía skoraði gegn Spáni í fyrstu umferð en eftir það hélt Casillas markinu hreinu. Ótrúlegir yfirburðir Spánar í mótinu fengust staðfestir með þessum stórsigri í úrslitaleiknum. Ljóst er að Spánn hefur á að skipa besta liði Evrópu aðra keppnina í röð. Liðið hefur nú unnið þrjú stórmót í röð.
88. mín. Chelsea félagarnir Torres og Mata að koma Spáni í 4-0. Torres sýndi ótrúlega óeigingirni að senda boltann á Mata sem var í betra færi en Mata var nýkominn inná sem varamaður.
84. mín. Fernando Torres er fyrsti leikmaðurinn til að skora í tveimur úrslitaleikjum EM í röð. Hann var að gulltryggja sigur Spánar með laglegri afgreiðslu eftir sendingu Xavi sem var að leggja upp sitt annað mark í keppninni, bæði í úrslitaleiknum.
62. mín. Enn syrtir í álinn hjá Ítölum því Thiago Motta þurfti að fara meiddur af leikvelli aðeins fimm mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður en hann var þriðja og síðasta skiptin Ítalíu í leiknum. Ítalir verða því einum færri það sem eftir lifir leiks ef Motta getur ekki komið aftur inná.
48. mín. Spánn byrjar seinni hálfleikinn af krafti og munaði minnstu að liðið kæmist í 3-0. Það bendir ekkert til þess að Spánn ætli að hanga á forystunni.
41. mín. Spánverjar eru að undirstrika að þeir séu besta lið í heimi strax í fyrri hálfleik. Jordi Alba að skora annað mark Spánar sem eru að yfirspila Ítalíu. Xavi átti frábæra stungusendingu á bakvörðinn sem var kominn fremstur og kláraði færið eins og margreyndur framherji.
29. mín. Fyrsta færi Ítala. Cassano með skot sem fer beint á Casillas.
25. mín Spánverjar enn sterkari aðilinn í leiknum og eru mjög beinskeyttir í sínum aðgerðum þó Ítalir séu að komast aðeins meira inn í leikinn.
15. mín Spánverjar komast sanngjarnt yfir. Cesc Fabregas lék upp að endalínunni hægra megin í vítateignu, sendi boltann fyrir markið þangað sem David Silva var mættur og stangaði boltann í markið. Frábært mark og Evrópumeistararnir komnir yfir.
5. mín Spánverjar miklu sterkari aðilinn fyrstu mínúturnar.
Spánverjar og Ítalir mættust í riðlakeppninni og skildu jöfn 1-1. Spánverjar eiga Evrópumeistaratitil að verja og gætu orðið fyrsta þjóðin til að verja titil sinn.
Hér fyrir neðan birtast sjálfkrafa allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.
Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Það vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar Roberto Mancini, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City, keypti heilsíðuauglýsingu í Manchester Evening News þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum félag...
Meira
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir Norrköping í dag er hann skoraði mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Halmstad á útivelli.
Meira
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, virðist vera búinn að sætta sig við að kólumbíski framherjinn Radamel Falcao sé á förum frá spænska félaginu. Argentínski þjálfarinn ætlar í það minnsta ekki a...
Meira
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í bikarúrslitaleiknum á Spáni í síðustu viku.
Meira
Franska blaðið L'Equipe staðhæfir í dag að AS Monaco ætli sér að bjóða 5,5 milljarða króna, 30 milljónir punda, í belgíska varnarmanninn Vincent Kompany, fyrirliða Manchester City.
Meira
Enska knattspyrnufélagið Man. City og bandaríska hafnaboltafélagið New York Yankees hafa tekið höndum saman og stofnað knattspyrnufélag í New York.
Meira
Emmanuel Eboue er afar sérstakur knattspyrnumaður. Hann lék lengi með Arsenal en er nú á mála hjá Galatasarey í Tryklandi. Liðið var Tyrkneskur meistari um helgina og fagnaði Eboue mjög vel.
Meira
Svíinn Zlatan Ibrahimovic hefur verið valinn leikmaður ársins í frönsku Ligue 1 deildinni. Þessi 31 árs leikmaður skoraði 29 mörk í deildinni í vetur og leiddi liðið til síns fyrsta sigur í deildinni ...
Meira
Íslendingaliðið Avaldsnes tapaði í dag 1-2 gegn Røa í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Fjórir Íslendingar leika með Avaldsnes en það eru þær. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir, M...
Meira
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Heerenveen þegar liðið tapaði 2-1 gegn Utrecht í síðari leik liðanna í umspili um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Meira
Anderlecht varð í dag belgískur meistari í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli gegn Ólafi Inga Skúlasyni og félögum í Zulte Varegem í lokaleik úrslitakeppni efstu liða deildarinnar.
Meira