Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Danmörk 26-34 | Rassskelling í síðasta leiknum fyrir HM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór Þór Gunnarsson, hægri hornamaður Íslands.
Arnór Þór Gunnarsson, hægri hornamaður Íslands. vísir/ernir
Ísland steinlá fyrir Danmörku, 26-34, í síðasta leiknum í Bygma bikarnum í handbolta í Árósum í kvöld.

Þetta var síðasti leikur liðanna fyrir HM í Frakklandi sem hefst á miðvikudaginn.

Ólympíumeistarar Dana höfðu mikla yfirburði í leiknum og sigur þeirra var aldrei í hættu. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar líta afar vel út og eru líklegir til afreka á HM.

Íslenska liðið byrjaði leikinn illa, eins og alla leikina í Bygma bikarnum. Eftir 11 mínútna leik var staðan 4-9, Dönum í vil og eftir það var róðurinn þungur.

Sóknarleikurinn gekk erfiðlega gegn framliggjandi vörn Dana sem voru fljótir að refsa með mörkum úr hraðaupphlaupum. Og líkt og í öllum leikjunum á mótinu vörðu íslensku markverðirnir varla skot fyrstu 15 mínúturnar. Á meðan var Niklas Landin í góðum gír í marki Dana og varði 12 skot í fyrri hálfleik (55%).

Skyttur íslenska liðsins voru óvirkar í fyrri hálfleik og langt fram eftir leik. Ólafur Guðmundsson skoraði sitt eina mark tveimur mínútum fyrir leikslok á meðan Rúnar Kárason skoraði sex mörk á síðustu 20 mínútum. Ekkert kom heldur út úr Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Arnóri Atlasyni og Janus Daði Smárason átti erfitt uppdráttar.

Danir voru átta mörkum yfir í hálfleik, 11-19, og strax í upphafi seinni hálfleik var munurinn kominn upp í 10 mörk, 11-21.

Íslenska liðið sýndi loksins lit í stöðunni 14-23. Íslendingar skoruðu þá fjögur mörk í röð og minnkuðu muninn í fimm mörk, 18-23.

En svo fór allt í sama farið aftur. Danir stigu á bensíngjöfina og náðu afgerandi forskoti á nýjan leik. Á endanum munaði átta mörkum á liðunum, 26-34.

Rúnar var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk. Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með fimm mörk og Gunnar Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk úr jafnmörgum skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×