Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 20-26

Vísir Handbolti 09. febrúar 2012 15:18
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 20-26
Mynd/Anton
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Topplið Hauka í N1-deild karla fer ekki vel af stað eftir EM-fríið. Liðið tapaði í kvöld sínum öðrum leik í röð og að þessu sinni gegn erfkifjendunum í FH á heimavelli, 20-26.

Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik 10-10. FH-ingar voru þó mun sterkari í þeim síðari og tryggðu sér sanngjarnan sex marka sigur. Þeir hafa þar með minnkað forskot Hauka á toppnum niður í eitt stig.

Haukarnir byrjuðu vel en misstu kraftinn þegar á leið fyrri hálfleikinn og FH-ingar gengu á lagið. Um leið og FH-ingar fóru að leysa betur framliggjandi vörn Haukanna voru þeim allar leiðir færar.

Haukar voru búnir að vinna báða leikina við FH í vetur nokkuð örugglega en nú snérust hlutirnir við. Liðin mætast strax aftur eftir þrjá daga og þá í undanúrslitum bikarsins. FH-ingar unnu í kvöld en það verður miklu meira undir í leiknum á sunnudaginn.

Haukar byrjuðu leikinn betur og Tjörvi Þorgeirsson kom þeim í 2-0 með því að skora fyrstu mörk leiksins. Birkir Ívar varði þrjú fyrstu skot FH-inga og tók alls sjö (af 9) skot á fyrstu átta mínútunum.

Haukar náðu mest þriggja marka forskoti, 6-3, eftir að Freyr Brynjarsson og Gylfi Gylfason skiptust á því að stela boltanum og skora úr hraðaupphlaupi.

FH-ingar komu muninum strax niður í eitt mark og náðu síðan að jafna metin í 9-9 rúmum tveimur mínútum fyrir hálfleik.

Ólafur Gústafsson átti síðan lokaorð hálfleisins þegar hann jafnaði metin í 10-10 en Birkir Ívar Guðmundsson var þá búinn að verja fimm fyrstu skotin hans í leiknum.

FH-ingar voru í sífellum vandræðum með framliggjandi vörn Haukaliðsins en tókst að vinna betur út úr sínum málum í lok fyrri hálfleiksins sem skilaði þeim jafnri stöðu í hálfleik.

Haukar klóruðu sig örugglega í hausnum í hálfleik hvernig stæði á því að þeir væri ekki yfir í hálfleik en þeir náðu ekki nógu vel að vinna sig út úr því þegar FH-ingar tóku fastar á þeim í lok hálfleiksins.

FH-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn eins og þeir enduðu þann fyrri og nú var allt annað lið inn á vellinun. Þeir leystu betur framliggjandi vörn Haukanna og tóku vel á í vörninni.

FH-ingar litu síðan ekki til baka eftir þeir breyttu stöðunni úr 15-15 í 15-20. Haukarnir náðu að minnka muninn í þrjú mörk en komust aldrei nær nágrönnum sínum en það.

Örn Ingi Bjarkason stjórnaði leik FH-liðsins frábærlega í seinni hálfleiknum og Andri Berg Haraldsson og Hjalti Þór Pálmason nýttu sín skot vel. Besti maður liðsins var þó Daníel Freyr Andrésson sem varði val allan leikinn.

Haukarnir voru nánast skyttulausir í þessum leik því Stefán Rafn Sigurmannsson og Nemanja Malovic voru í tómu tjóni (3 mörk úr 14 skotum, fullt af töpuðum boltum) og það var alltof krefjandi verkefni fyrir Tjörva Þorgeirsson að stýra leik liðsins um leið að vera aðalógnun liðsins. Birkir Ívar varði vel í upphafi en hélt ekki út og vörnin datt líka niður gegn skynsömum sóknarleik FH-inga í seinni hálfleiknum.

Haukar þurfa ekki að bíða lengi eftir tækifæri til hefnda því liðin mætast í undanúrslitum bikarsins á sama stað á sunnudaginn. Það má búast við blóðugari baráttu en í kvöld enda ekki oft að annað Hafnarfjarðarliðið missi máttinn í seinni hálfleik eins og Haukarnir gerðu í kvöld.


Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 20-26
mynd/anton
Baldvin: Sunnudagurinn verður miklu erfiðari
„Þetta var flott í dag og góður leikur hjá okkur," sagði Baldvin Þorsteinsson, fyrirliði FH, eftir sex marka sigur á erkifjendunum í Haukum í kvöld.

„Byrjunin var svolítið eins og hinir leikirnir á móti þeim í vetur. Við vorum að gera tæknifeila og þeir voru að skora úr hraðaupphlaupum. Við náðum síðan að hrista skrekkinn úr okkur og fórum að spila okkar bolta. Vörnin var frábær og Danni var frábær fyrir aftan og þetta gat ekki verið betra," sagði Baldvin.

„Það féll margt með okkur í kvöld og þetta var góður sigur. Haukarnir eiga inni og sunnudagurinn verður miklu erfiðari," sagði Baldvin.

„Menn þurfa að hugsa vel um sig næstu daga og þetta var líka í fyrsta skiptið sem ég spila leik á milli Hauka og FH þar sem Haukaáhorfendurnir voru fleiri. Ég vil sjá alla FH-inga mæta á sunnudaginn. Það verður alvöruslagur," sagði Baldvin.

„Ég hef tapað tvisvar í röð í deild og bikar. Það segir ekkert þótt að við séum að mæta þeim aftur eftir þrjá daga. Það byrjar núll-núll á sunnudaginn og svo taka bara við 60 mínútur," sagði Baldvin.


Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 20-26
mynd/anton
Freyr: Ótrúlega lélegt hvað við gefum eftir
„Þetta hefur ekki legið fyrir okkur í seinni hálfleik í síðustu tveimur leikjum. Það var jafnt í hálflleik á móti Val, 8-8, og svo 10-10 í kvöld. Svo komum við ekki nógu brattir í seinni hálfleikinn. Við erum ekki að gera þetta af nógum miklum krafti sóknarlega og erum síðan að gera klaufamistök í vörninni. Það er bara einbeitingarleysi og ekkert annað," sagði Freyr Brynjarsson, fyrirliði Hauka eftir sex marka tap á móti FH í kvöld.

„Seinni hálfleikarnir í þessum tveimur leikjum eru ekki boðlegir og við getum hvorki boðið sjálfum okkur né áhorfendum upp á svona vitleysu. Það er ótrúlega lélegt hvað við gefum eftir. Einbeitingin klikkar á einhverjum punkti hjá okkur og svo bara hættum við. Þetta er ekki hægt," sagði Freyr.

„Það verður núna unnið í okkar málum og við komum tvíelfdir til leiks á sunnudaginn. Þá er allt eða ekkert, annaðhvort bikarúrslit eða búnir," sagði Freyr.

„Við verðum að klára heilan leik. Við getum ekki bara spilað fyrri hálfleikinn og vonað síðan það besta í seinni hálfleik. Það gengur ekki upp," sagði Freyr.

„Ég neita að trúa því að þetta hafi eitthvað með fríið að gera. Við æfðum vel og allt það. Kannski hafði fríið þau áhrif á okkur að við fórum aðeins niður á hælana og við megum ekki gera það. Við verðum að koma okkur upp á tærnar aftur og vera tilbúnir í 60 mínútur í öllum leikjum. Það er ekkert annað í boði," sagði Freyr.




Örn Ingi: Var svolítið feiminn að sækja á þá í fyrri hálfleik
„Þetta var allt annað en í síðustu leikjum á móti þeim. Við vorum miklu ferskari í kvöld sérstaklega í seinni hálfleik," sagði Örn Ingi Bjarkason, leikstjórnandi FH, sem var mjög góður í seinni hálfleiknum þar sem hann stjórnaði leik sinna manna. FH vann seinni hálfleikinn 16-10 og um leið sannfærandi sigur.

„Við töluðum um það í hálfleik að við þyrftum að fækka þessum tæknifeilum hjá okkur og vanda sóknina því þá fá þeir ekki þessi hraðaupphlaup. Ég held að þeir hafi fengið eitt hraðaupphlaup í seinni hálfleik og á móti fimm í þeim fyrri. Við töluðum um að bæta það og það gekk eftir. Við vorum miklu ferskari í seinni hálfleik og það gekk allt upp," sagði Örn Ingi.

„Ég fann mig miklu betur í seinni hálfleik og var miklu ákveðnari. Ég var svolítið feiminn að sækja á þá í fyrri hálfleik en þegar ein sókn byrjaði að ganga þá fór þetta að rúlla hjá mér," sagði Örn Ingi en það er stuttu í bikarleik liðanna sem verður á sunnudaginn.

„Undirbúningurinn fyrir leikinn á sunnudaginn hefst í kvöld og það er allt á fullt. Við þurfum annað svona góðan leik á sunnudaginn. FH hefur ekki farið lengi í Höllina og ég held að það sé alveg klárt mál að það sé kominn tími á það," sagði Örn Ingi.


Aron: Það auðvitað óþolandi að tapa á móti FH
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var ánægðari með leik sinna manna en í tapinu á móti Val en þurfti engu að síður að horfa upp á annað tap liðsins í röð.

„Það auðvitað óþolandi að tapa á móti FH," sagði Aron en bætti svo við: „Mér fannst við koma sterkir inn í leikinn, með góðri vörn, góðri markvörslu og ágætis krafti í sóknarleiknum. Við vorum að henda boltanum of auðveldlega frá okkur í þó nokkrum tilfellum þar sem við vorum að leyfa okkur að taka óöguð skot eða gefa óagaðar sendingar. Þá eru þeir að ná að halda jöfnu í hálfleik í staðinn fyrir að við værum með ágætis forskot í hálfleik. 10-10 gaf ekki rétta mynd af fyrri hálfleiknum," sagði Aron.

„Í seinni hálfeik eiga þeir mjög auðvelt með að skora í byrjun leiks þar sem við erum að gera einstaklingsmistök í vörninni. Svo byrjum við að klikka hvað eftir annað í skotunum og mér fannst skytturnar ekki þora að horfa almennilega á markið í seinni hálfleiknum. Þeir voru ekki nógu áræðnir og þá getur sóknarleikurinn orðið svolítið ræfislegur: Hann var að verja oft þegar við vorum ákjósanlegum færum en að skjóta mjög illa," sagði Aron.

„Mér fannst leikurinn á móti Val slakur yfir höfuð. Það var öðruvísi leikur með meiri værukærð. Í þessum leik er annað að en það eru hlutir sem við þurfum að vinna með. Það er auðveldara að vinna með hluti þegar menn eru að leggja sig fram. Það var fín barátta í liðinu í dag og menn voru að berjast fyrir þessu. Þegar var verið að verja frá okkur hvað eftir annað úr ákjósanlegum færum þá misstu menn trúna á skotin sín," sagði Aron.

„Núna er bara að safna vopnum, undirbúa sig vel fyrir bikarleikinn og koma tvíelfdir til leiks. Allir leikir milli Hauka og FH eru stórir leikir en þetta er undanúrslitaleikurinn þar sem þetta snýst um allt eða ekkert," sagði Aron.

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 26. maí. 2012 12:56

Alfreð: Þetta er besta handboltamót í heimi

Vísir hitti á Alfreð Gíslason, þjálfara Kiel, skömmu fyrir leik liðsins gegn Füchse Berlin...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 13:11

Í beinni: Füchse Berlin - Kiel

Boltavakt Vísis er með beina textalýsingu frá undanúrslitaviðureign Füchse Berlin og Kiel ...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 12:15

Hitað upp fyrir Final Four | Myndir

Um 20 þúsund manns munu í dag troðfylla hina glæsilegu Lanxess-höll í Köln þegar undanúrsl...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 11:55

Hinn íslenskættaði Gísli spáir AG sigri

Blaðamaður Vísis rakst á hóp stuðningsmanna danska liðsins AG fyrir utan Lanxess-höllina í...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 10:00

Ólafur: Kominn í mitt besta form

"Það er mjög sérstakt að vera kominn aftur til Kölnar,“ sagði Ólafur Stefánsson á bl...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 09:00

Tvö lið af fjórum nýliðar

Füchse Berlin og AG frá Kaupmannahöfn eru bæði komin áfram í undanúrslit Meistaradeildar E...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 08:00

Fyrstu handboltaleikirnir í þrívídd

Það verður engu til sparað í umfjöllun og umgjörð þegar að úrslitin ráðast í Meistaradeild...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 07:00

Aron Kristjáns: Danirnir eiga góðan séns

Um helgina ráðast úrslitin í Meistaradeild Evrópu í Köln í Þýskalandi. Fjögur bestu félags...  

Meira
Handbolti 26. maí. 2012 06:00

Pistillinn: Þér er boðið í stærstu veislu ársins

Íslenskir handboltaunnendur eru góðu vanir eftir frábæran árangur strákanna okkar síðustu ...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 22:45

Dagur: Mikilvægasti leikur ferilsins

Dagur Sigurðsson var kokhraustur fyrir undanúrslitaleikinn gegn hinu geysisterka liði Kiel...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 21:41

Gunnar Berg og Skúli þjálfa Stjörnuliðin

Handknattleiksdeild Stjörnunnar tilkynnti í kvöld um ráðningu á þjálfurum meistaraflokka f...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 18:00

Alfreð: Meistaradeildin mikilvægari en þýska úrvalsdeildin

Alfreð Gíslason sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir úrslitahelgi Meistaradeildar Evró...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 16:15

Ólafur vildi ekki snerta Meistaradeildarbikarinn

Ekstra Bladet skrifar í dag um þá sérvisku íslenska landsliðsmannsins Ólafs Stefánssonar a...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 16:00

Liðsfélagar Guðjóns Vals hrósa honum í hástert

Guðjón Valur Sigurðsson verður í sviðsljósinu með AG Kaupmannahöfn á úrslitahelgi Meistara...  

Meira
Handbolti 25. maí. 2012 07:00

Ólafur getur unnið í þriðja landinu

Ólafur Stefánsson á möguleika á því að vinna Evrópukeppni meistaraliða í fimmta sinn á fer...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 17:45

Ágúst og Rakel Dögg stofna saman Handknattleiksakademíu

Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði landsliðs kv...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 10:16

Kvennalandsliðið mætir U-16 liði karla

A-landslið kvenna í handbolta mun í kvöld leika æfingaleik gegn íslenska piltalandsliðinu ...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 08:00

Snorri Steinn: Mætum óhræddir til leiks

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast um helgina. Þá fara fram undanúrslit og...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 07:30

Óli er maður stóru leikjanna

Ólafur Stefánsson mun mæta sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á la...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 22:39

Heimir Óli búinn að semja við GUIF

Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 19:40

Fínn leikur Hannesar dugði ekki til sigurs

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf varð að sætta sig við tap, 35-37, á heimavelli gegn Gumm...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 23:30

Guðmundur grillar ofan í stuðningsmenn Löwen

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og lærisveinar hans verða með grillspa...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 20:30

Þrjú ný félög í N1-deild kvenna

Alls verða tólf lið í N1-deild kvenna næsta vetur þar sem þrjú ný félög hafa boðað þáttöku...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 13:00

Anton til Danmerkur

Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Sö...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 20:00

Noregur, Króatía og Pólland berjast um EM 2016

Þrjú lönd eru enn í baráttunni um að halda EM í handbolta árið 2016. Það verður ákveðið í ...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 13:30

Lövgren lofar Ólaf og Alexander

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina og hefur Svíinn Stef...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 07:00

Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolt...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 21:36

Sunneva Einarsdóttir ver mark Stjörnunnar á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gert samning við markvörðinn Sunnevu Einarsdóttir en...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 20:30

Stefnir allt í fullkomið tímabil hjá Kiel | 32 sigrar í röð

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að þýska handknattleiksliðið Kiel skrái sig ...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 19:21

Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR

Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 07:00

Þórey og Rut rétt misstu af bronsinu

Íslensku landsliðskonunar Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir urðu í fjórða sæti me...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 19:42

Fimm mörk Kára ekki nóg á móti Hamburg - mikilvægt hjá Bergischer

Kári Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir HSG Wetzlar þegar liðið tapaði 26-28 á heimavelli f...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 17:02

AG í úrslitaleikinn um titilinn - Ólafur mjög góður í sigri á Kolding

AG Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolt...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 14:28

Þórir pólskur meistari í handbolta

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu nú áðan pólskir meistarar í handbolta e...  

Meira
Handbolti 18. maí. 2012 19:30

Mikilvægur sigur hjá Füchse Berlin

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin færðust í kvöld skrefi nær því að tryggja ...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 22:45

Þjálfari Rúnars Kárasonar rekinn

Rúnar Kárason fær senn nýjan þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bergischer HC þar se...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 21:15

Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þega...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 16:32

Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu

Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 12:45

Sögusagnir í Þýskalandi: Guðmundur að hætta með Löwen

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, gæti veri...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 20:25

Hrun hjá Löwen í seinni hálfleik

Rhein-Neckar Löwen steinlá fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:46

Kiel enn ósigrað í Þýskalandi

Kiel hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með sex mar...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:31

Rut og Þórey nálgast bronsið

Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Te...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 17:44

Vignir í fjórtán daga bann

Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann ...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 11:57

Sunna kölluð inn í A-landsliðið

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur þurft að gera eina breytin...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 22:45

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann le...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 18:43

Sigurbergur Sveinsson í Hauka

Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 20-26