Umfjöllun: Grindavík lagði Stjörnuna aftur Elvar Geir Magnússon skrifar 25. febrúar 2010 21:08 Páll Axel var með 24 stig og fann sig talsvert betur en í úrslitaleiknum í bikarnum.
Grindvíkingar náðu í tvö stig til viðbótar úr greipum Stjörnumanna í Garðabænum í kvöld. Lokastaðan var 76-81 eftir jafnan leik. Fyrir leikinn munaði tveimur stigum á liðunum, Stjarnan með 26 stig en Grindavík 24 stig. Það mátti því búast við hörkuleik. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en hvorugt liðanna var þó almennilega að finna taktinn. Grindvíkingar leiddu með einu stigi 15-16. Stjörnumenn voru síðan sterkari í öðrum leikhlutanum og höfðu þriggja stiga forskot í hálfleik. Jovan Zdravevski fór fyrir Stjörnuliðinu í fyrri hálfleiknum. Í þriðja leikhlutan fundu gestirnir Darrel Flake betur undir körfunni og hjólin fóru að snúast betur. Mikið jafnræði var undir lokin og spennan mikil. Grindavík var með þriggja stiga forskot þegar skammt var eftir en Stjarnan með boltann. Jovan Zdravevski gerði slæm mistök, tók þriggja stiga skot í engu jafnvægi þegar nægur tími var til stefnu. Grindvíkingar náðu síðan að innsigla sigur sinn af vítalínunni og lögðu Stjörnuna öðru sinni í vetur. Stjarnan - Grindavík 72-76 (36-32) Stigahæstir hjá Stjörnunni: Jovan Zdravevzki 22, Justin Shouse 21, Djorde Pantelic 15, Fannar Helgason 12. Stigahæstir hjá Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 24, Darrel Flake 18, Þorleifur Ólafsson 13.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sjá meira