MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 17:15

Sumir fyrirlesarar eru skemmtilegri en aðrir

LÍFIÐ

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2

Vísir Íslenski boltinn 08. ágúst 2012 00:01
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2
MYND/DANÍEL
Guðmundur Marinó Ingvarsson á Grindavíkurvelli skrifar:
Grindavík náði mikilvægu 2-2 jafntefli gegn Fram á heimavelli í kvöld. Kristinn Ingi Halldórsson kom Fram tvisvar yfir í leiknum en Iain James Williamson og Hafþór Ægir Vilhljálmsson jöfnuðu jafn oft. Hafþór jafnaði þegar þrjár mínútur voru eftir en allt benti til þess að Fram myndi innbyrða sanngjarnan sigur. Enn munar því sex stigum á liðunum í fallbaráttunni.

Yfirburðir Fram í fyrri hálfleik voru miklir og mátti Grindavík þakka fyrir að aðeins munaði einu marki á liðunum í hálfleik. Óskar Pétursson fór á kostum í markinu en Grindavík réð ekkert við hraða Kristins Inga Halldórssonar.

Grindavík komst mun meira inn í leikinn í seinni hálfleik og var meira jafnræði með liðunum. Eftir að Fram komst yfir öðru sinni færðu Grindvíkingar sig framar og áttu sínar bestu sóknir og uppskáru mikilvægt jöfnunarmark þegar öll sund virtustu lokuð.

Bæði lið fengu færi til að tryggja sér sigurinn en allt kom fyrir ekki og því munar enn sex stigum á liðunum. Grindavík er sem fyrr í botnsætinu nú með 7 stig, stigi á eftir Selfossi. Fram er komið með 13 stig og ljóst að spennan helst eitthvað áfram í botnbaráttunni þó önnur lið blandi sér ekki í hana úr þessu.


Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2
Þorvaldur: Áttum að klára þetta
„Mér fannst við fá nóg af færum til að klára leikinn en á meðan maður skorar ekki mörk er alltaf hætta. Það er mikilvægt að ná öðru markinu og ef við hefðum náð því hefðum við klárað leikinn en við náðum því ekki og hleyptum þeim inn í leikinn á klaufalegan hátt þegar það kemur svífandi bolti inn í teiginn sem við náum ekki að hreinsa," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram í leikslok.

„Við eigum að skora miklu meira en eitt mark í fyrri hálfleik og svo strax í seinni hálfleik líka. Við fáum færi til að klára þá en þegar menn klára ekki færin getur það komið í bakið á manni. Við fengum stig og tökum það.

„Það er ekkert til sem heitir þægilegt í þessu. Þetta er haltu slepptu staða í deildinni. Ég hefði viljað þrjú stig en við tökum eitt. Þetta er svekkjandi þar sem við vorum töluvert betra liðið. Það er sagan okkar, liðið spilaði vel og barðist en það er grátlegt að nýta ekki þessi færi," sagði Þorvaldur að lokum.


Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2
Guðjón: Þurfum meiri trú
„Þetta voru vonbrigði. Við settum leikinn upp til að vinna en það vantaði kannski meiri ákefð í byrjun leiksins. Ef við hefðum náð að spila allan leikinn eins og við spiluðum í seinni hálfleik þá er ég viss um að við hefðum getað unnið þennan leik," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur eftir leikinn.

„Við sýndum karakter að jafna hérna í restina og ég hefði viljað sjá skotið hans Tomi hér í restina hitta ramann en ekki fara yfir slána. Við vorum nálægt því að ná öllum þremur stigunum en það gerðist ekki því miður og því er staðan óbreytt á botninum.

„Við hefðum getað verið meira undir í hálfleik, fyrri hálfleikurinn var slakur hjá okkur en engu að síður fengum við eitt besta færið í fyrri hálfleiknum. Í sjálfu sér hefðu Framarar getað sett eitt líka. Í seinni hálfleik hefðum við getað búið til betri stöður en gerum.

„Það hefði verið hræðilegt að tapa þessum leik, þá hefðum við þurft nánast kraftaverk en það kom fínn kraftur í þetta. Hafþór gerði það sem hefur oft vantað hjá okkur, hann var virkur í teignum fylgdi á eftir og kom boltanum yfir línuna.

„Eins og staðan er núna hefur ekkert breyst og þetta verður blóðug barátta alveg til loka. Ég vil meina að við eigum meira inni en það sem menn hafa verið að taka í þessar 90 mínútur en það virðist alltaf vera þannig að menn þurfa að vera komnir í einhverja dauða stöðu til að þeir stígi fastar til jarðar. Við þurfum að spila í 90 mínútur og hafa meiri trú. Ég hef talað um þetta frá því við byrjuðum í vor að menn þurfi að hafa meiri trú á sjálfum sér og félögunum í liðinu. Við sjáum að það er alveg hægt að flytja boltann og færa hann á milli manna þegar sá gállinn er á, sagði Guðjón að lokum.

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:45

Víðir skoraði flottasta markið í 3. umferð

Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson skoraði flottasta markið í 3. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta að mati lesenda Vísis en kosið var á milli fimm fallegustu markanna hér inn á Vísi. Lesendur Vísis f... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 14:30

Markaregn fjórðu umferðar

Tólf mörk voru skoruð í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla en það má sjá þau öll í meðfylgjandi myndbandi. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 09:00

Marksækinn og söngelskur Skagamaður

Hallur Flosason skoraði annað marka ÍA í 2-0 sigri á Fram í gær en ef til vill vita færri að hann er einnig stórefnilegur tónlistarmaður. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 06:00

Lærið opnað að aftan

"Hún er með risastóran skurð eftir að lærið var opnað að aftan," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um meiðsli Margrétar Láru Viðarsdóttur. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:31

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - FH 0-1

Róbert Örn Óskarsson var hetja FH-inga í 1-0 sigri á Blikum í Pepsi deild karla í kvöld. Blikar fengu víti á 89. mínútu og gátu jafnað leikinn en Róbert varði vítið og tryggði gestunum stigin þrjú. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:29

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Fram 2-0

Skagamenn fengu sín fyrstu stig í sumar með sigri á Fram, 2-0, í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Páll Gísli Jónsson, markmaður íA, átti stórleik í fyrri hálfleik og bjargaði Skagamönnum oft... Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:25

Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Stjarnan - Valur 1-1

Stjarnan og Valur gerður 1-1 jafntefli í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjörnumenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins en g... Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 17:30

Feðgin dæmdu í 1. deild kvenna

Bergur Þór Steingrímsson og dóttir hans, Ellen Elísabet, voru aðstoðardómarar á leik í 1. deild kvenna nú um helgina. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 14:54

Þetta er hið versta mál

Fylkismaðurinn Pablo Punyed braut bein í fæti í gær og verður frá keppni næstu átta vikurnar hið minnsta. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 14:30

Neitar að þreyta hafi valdið uppköstunum

Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, kastaði upp í viðureign liðsins gegn ÍBV á Hásteinsvelli í gær Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 13:11

Margrét Lára snýr aftur í landsliðið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið 23 leikmenn í A-landslið kvenna sem mun leika æfingaleik gegn Skotum á Laugardalsvelli þann 1. júní næstkomandi. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 08:00

Ég er með breitt bak

Róbert Örn Óskarsson hefur farið á kostum á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum FH í byrjun tímabils. Hafnfirðingar sækja Breiðablik heim í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 19:00

Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikir á sama stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Fylkir 2-2

Keflavík og Fylkir þurftu að skipta með sér stigunum í leik liðanna suður með sjó í 4. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en bæði lið klúðruðu víta... Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - Víkingur 1-0 | Eitt skot eitt mark

Þór Akureyri náði í sín fyrstu stig á þessari leiktíð eftir 1-0 sigur gegn Víkingi frá Ólafsvík í Pepsi-deild karla í dag. Liðin mættust á Akureyri og höfðu heimamenn betur í heldur bragðdaufum leik. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 0-2 | Fullt hús hjá KR

KR-ingar héldu sigurgöngu sinni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu áfram þegar liðið vann sanngjarnan 2-0 útisigur á ÍBV í Eyjum. Baldur Sigurðsson var enn á ný á skotskónum hjá KR. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 16:21

Einar Hjörleifs byrjar | Simmonds á bekknum

ÍBV tekur á móti KR og nýliðar Þórs og Víkings Ólafsvíkur mætast norðan heiða í 4. umferð Pepsi-deildar karla klukkan 17. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 15:16

Í undirmeðvitund Eyjamanna að vera illa við KR-inga

Stórleikur fer fram í Vestmannaeyjum í dag þegar ÍBV tekur á móti KR í fjórðu umferð Pepsi-deild karla. KR er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en ÍBV er með sjö stig. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 16:45

Allir leikirnir í Pepsi-deildinni á einum stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis en þá fara fram þrír leikir í 4. umferð. Meira
Íslenski boltinn 19. maí 2013 20:30

Lagði flöskuna á hilluna 18 ára

Líf markvarðarins Gunnleifs Gunnleifssonar, sem allir þekkja sem Gulla, hefur verið kaflaskipt svo ekki sé fastar að orði kveðið. Meira
Íslenski boltinn 19. maí 2013 11:45

FH-ingar ósáttir við ummæli Gylfa Orra

Knattspyrnudeild FH hefur sent Knattspyrnusambandi Íslands kvörtun vegna ummæla formanns dómaranefndar sambandsins um brottvísun fyrirliða FH-inga. Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 00:01

Jafnt hjá Val og ÍBV í frábærum leik | Úrslit í Pepsi-deild kvenna

Valur og ÍBV skildu jöfn 3-3 í bráðfjögurum leik í Pepsí deild kvenna í dag í beinni útsendingu hér á Vísi. Bæði lið fengu urmul færa og hefðu mörkin hæglega getað orðið fleiri. Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 09:00

Yngsti fyrirliði deildarinnar á skotskónum

Guðmunda Brynja Óladóttir og félagar hennar í Selfossliðinu eru með fullt hús eftir tvo leiki í Pepsi-deild kvenna í fótbolta. Hún hefur skorað þrjú af fjórum mörkum liðsins. Fyrsti heimaleikurinn er ... Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 08:34

Botnlanginn sprakk

Anna Garðarsdóttir, leikmaður Selfoss í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu, lagðist inn á spítala í gær þar sem botnlangi hennar sprakk. Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 06:00

Garðsmennirnir kláruðu leikinn

Magnús Þórir Matthíasson var búinn að vera inn á í aðeins tvær mínútur þegar hann lagði upp jöfnunarmark Keflavíkur gegn Víkingi Ólafsvík í leik liðanna í fyrrakvöld. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000