Innlent

Umferðartafir í dag

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/pjetur
Búast má við töfum á milli klukkan níu og sextán á aðrein frá Sæbraut/Reykjanesbraut að Miklubraut í dag vegna vegaframkvæmda. Hjáleið verður um mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Stekkjabakka.

Þá hófst vinna við fræsingu og malbikun á Úlfarsfellsvegi að Reykjavegi klukkan sex í morgun og má því búast við truflun á umferð fram eftir degi.

Að sama skapi eru framkvæmdir við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, en umferð þar er beint um hjáleið. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×