Innlent

Umferðarslys á Sæbraut

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá slysstað í dag.
Frá slysstað í dag. VÍSIR/ÓS
Tilkynnt var um umferðaróhapp um hádegisbil í dag á gatnamótum Sæbrautar og Katrínartúns í Reykjavík. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði er slysið ekki talið alvarlegt og einungis um minniháttar meiðsl ökumanns að ræða.

Fólksbíll var fjarlægður af vettvangi en frekari upplýsingar um tildrög slyssins fengust ekki frá slökkviliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×