Innlent

Umferðarslys á Kringlumýrarbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi á Kringlumýrarbraut rétt fyrir klukkan fimm í dag.
Frá vettvangi á Kringlumýrarbraut rétt fyrir klukkan fimm í dag. Vísir/Eyþór
Lögregla, sjúkralið og tækjabíll slökkviliðs voru kallaðir út vegna áreksturs á Kringlumýrarbraut, rétt sunnan Bústaðavegs á fimmta tímanum í dag. Kringlumýrabraut hefur verið lokað til suðurs, frá Listabraut. Búast má við miklum töfum næsta klukkutímann.

Samkvæmt fyrstu upplýsingum virðist ekki hafa orðið alvarleg slys á fólki en þó gæti þurft að nota búnaði til að klippa fólk út úr bílum. 

Viðbragðsaðilar voru nýmættir á vettvang klukkan tíu mínútur fyrir fimm.

Uppfært 18:27

Búið er að opna Kringlumýrarbrautina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×