Skoðun

Umferðarkrísan í miðborginni

Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar
Ófremdarástand ríkir í miðborg Reykjavíkur. Ferðamenn streyma til landsins og gista á hótelum og gistiheimilum í miðborginni. Þeir vilja sjá Ísland og kaupa sér dagsferðir til að sjá alla þessa stórmerkilegu staði sem Íslendingar eiga og kynnast þannig náttúrunni örlítið. Ökuleiðsögumenn og bílstjórar keyra um miðborgina til að taka þessa ferðamenn upp á morgnana eða skila þeim á hótel að ferð lokinni. En íbúar miðborgarinnar eru bullandi óánægðir því bílstjórarnir verða stundum að hleypa út fólki eða taka upp á miðri götu. Þetta er vandamálið í hnotskurn.

Nýlega birtist grein á Vísi  (/g/2014140909549) og síðar /g/2014140909159) þar sem fjallað var um óánægju borgarbúa með umferðina um miðborgina á kvöldin og um nætur þegar verið er að koma heim með fólk. Harkalega var deilt á ökumenn ferðaþjónustubíla og það ónæði sem af fólksflutningunum hlýst. Um það er þetta að segja: Bílarnir hafa yfirleitt góðan öryggisbúnað. Sumir eru þannig búnir að þeir pípa þegar bakkað er. Yfirleitt er lítið ónæði af þessum tækjum og auðvitað má koma þeim tilmælum til eigendanna að aftengja bökkunarpípið. Það myndi þá væntanlega koma niður á öryggismálunum en það verður ekki bæði sleppt og haldið.

Hótel í hnapp

Í sömu grein segist samgöngudeild borgarinnar hafa komið fyrir nokkrum rútustæðum í miðborginni. En betur má ef duga skal. Nánast hvergi er gert ráð fyrir að jeppar og stærri eða minni rútur geti stoppað og alveg klárlega ekki á strætóbiðstöðvum eins og staðan er í dag. Samt hafa borgaryfirvöld óhikað veitt hótelum og gistihúsum starfsleyfi tvist og bast um miðborgina, stundum jafnvel mörgum hótelum á sömu torfunni án þess að gera ráð fyrir að ferðaþjónustan geti stoppað nokkurs staðar nærri.

Dæmi um þetta er Hlemmur. Þar eru að minnsta kosti þrjú hótel í hnapp, Hlemmur Square, Guesthouse 101 og 4th floor hotel auk þess sem nokkur hótel eru örlítið ofan og neðan við Hlemm. Hvergi er hægt að stoppa á þessu svæði og samt eru þar stundum tveir til þrír minni bílar að sækja fólk af sama hótelinu á sama tíma. Þetta veldur miklum vandræðum og getur orðið tilefni hnútukasts svo ekki sé meira sagt.

Hvað er til ráða? Strætóbílstjórar flauta. Ökuleiðsögumenn og rútubílstjórar eru í klemmu. Viðbrögðin eru þau að bíða færis og reyna að stoppa þar sem nokkur möguleiki er á, stundum uppi á stétt, stundum á miðri götu og reyna að greiða úr hlutunum eins hratt og örugglega og hægt er. En íbúarnir steyta samt hnefann og hnýta hátt og skýrt í bílstjórana, lýsa því fjálglega fyrir börnunum sínum hversu miklir aumingjar og ræflar þeir eru.

Tæklum þetta jákvætt

Ökuleiðsögumenn og bílstjórar aka ekki um göturnar í miðborginni að gamni sínu. Þeir eru í vinnu og verða að geta unnið sína vinnu. Þjóðin byggir afkomu sína meðal annars á erlendum ferðamönnum. Ferðaþjónustan hefur komið til móts við íbúana og getur örugglega gert betur. Sama gildir um borgaryfirvöld og íbúa. Ökumenn á rútum og jeppum forðast eftir fremsta megni að keyra um miðborgina á kvöldin. Ferðamenn geta nú valið um það hvort þeir kaupa skutl alveg upp að dyrum eða draga ferðatöskurnar sínar um göturnar í miðbænum. Stórar rútur fara ekki um litlu göturnar lengur. Útskýrt er fyrir fólki að rútur megi ekki fara um miðborgina og því sé fólk beðið um að labba. Þessu taka ferðamenn alltaf vel. En ábyrgðin á að vera hjá þeim sem ábyrgðina eiga. Skipulagsyfirvöld og samgönguyfirvöld hafa ekki sinnt hlutverki sínu nægilega vel. Ökutæki í ferðaþjónustunni verða að geta stoppað í miðborginni. Ég vil því hvetja til þess að við komum með tillögur um það hvernig leysa megi vandann í miðborginni frekar en að hnýta hvert í annað. Það er alveg ljóst að fjölga þarf stórlega svæðum þar sem jeppar og rútur geta stoppað við hótel. Það þarf að taka þessa umferð inn í skipulagninguna. Borgaryfirvöld þyrftu alltaf að gera ráð fyrir bílaumferð í kringum hótel og gististaði áður en og þegar þau veita starfsleyfi.

Lausnin felst tæpast í því að úthýsa öllum hótelum og gististöðum úr miðborginni. Tæklum þetta frekar jákvætt. Komum með tillögur að lausn.




Skoðun

Sjá meira


×