Innlent

Þriggja bíla árekstur í Hveragerði

Randver Kári Randversson skrifar
Mikill umferðarþungi er nú á Suðurlandsvegi, meðal annars á Ölfusárbrúnni.
Mikill umferðarþungi er nú á Suðurlandsvegi, meðal annars á Ölfusárbrúnni. Vísir/Magnús Hlynur
Mikill umferðarþungi er á nú á Suðurlandsvegi að sögn lögreglunnar á Selfossi og sérstaklega þá við Hveragerði og Selfoss.

Einn þriggja bíla árekstur varð við hringtorgið við Hveragerði um klukkan fjögur í dag en engan sakaði í árekstrinum.

Að sögn lögreglu skemmdust bílarnir ekki mikið. Þá hafa nokkrir verið teknir fyrir hraðakstur. Lögreglan gerir ráð fyrir mikilli umferð á Suðurlandsvegi fram á kvöld.



Lögreglan á Selfossi mun auka sýnilega löggæslu í tengslum við stærstu ferðahelgi ársins sem nú er að hefjast og mun halda uppi virku umferðareftirliti milli Reykjavíkur og Selfoss. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×