Innlent

Umferð á vegum: Snjórinn farinn að blotna

Samúel Karl Ólason skrifar
Á flestum leiðum í kringum Reykjavík, á Hellisheiði og í Þrengslum er hálka og skafrenningur. Þá er hálka og snjókoma á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu.
Á flestum leiðum í kringum Reykjavík, á Hellisheiði og í Þrengslum er hálka og skafrenningur. Þá er hálka og snjókoma á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Pjetur
Tekið er að blotna í snjónum á láglendi sunnan- og suðvestanlands og við það minnkar snjófjúk til muna. Byrjað er að lægja en nokkuð þétt logndrífa verður áfram víða suðvestanlands fram á síðdegið. Þá mun lægja mikið á milli klukkan 14 og 16 norðvestantil, hins vegar mun veður versna norðaustan- og austanlands með vaxandi vindi og skafrenningi.

Austanlands mun þar að auki setja niður talsverðan snjó frá því um miðjan dag og fram á nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.

Á flestum leiðum í kringum Reykjavík, á Hellisheiði og í Þrengslum er hálka og skafrenningur. Þá er hálka og snjókoma á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu. Snjóþekja og snjókoma er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og hálka og skafrenningur á Mosfellsheiði.

„Það er hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Suður- og Suðvesturlandi. Þungfært er sunnanmeginn í Hvalfirði. Þæfingsfærð er á Kjalarnesi. Snjóþekja og stórhríð er undir Akrafjalli. Hálka og óveður er undir Eyjafjöllum og við Vík.

Á Vesturlandi eru hálkublettir og óveður undir Hafnarfjalli en hálka eða snjóþekja á öðrum leiðum. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku. Hálka og skafrenningur er á flestum leiðum á Snæfellsnesi. Ófært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og skafrenningur á flestum leiðum þó er ófært á Hálfdán, Mikladal og Kleifarheiði. Þæfingsfærð og stórhríð er á Klettsháls en snjóþekja og stórhríð á Hjallaháls og Steingrímsfjarðarheiði. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar einnig er ófært á Bjarnarfjarðarhálsi og þaðan norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi - og Austurlandi er hálka eða snjóþekja allvíða og einnig skafrenningur á fjallvegum. Flughálka er á Dettifossvegi.  Þæfingsfærð er á Öxi og Breiðdalsheiði en snjóþekja eða hálkublettir og éljagangur eru með suðausturströndinni.“ Fyrir nánari upplýsingar og jafnvel breyttar aðstæður á vegum er best að skoða upplýsingar á heimasíðu Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×