Innlent

Umfangsmesta leit sögunnar: Fimm hundruð björgunar­sveitar­menn leita að Birnu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björgunarsveitarfólk hleður batteríin fyrir daginn í húsi björgunarsveitar Hafnarfjarðar.
Björgunarsveitarfólk hleður batteríin fyrir daginn í húsi björgunarsveitar Hafnarfjarðar. vísir
Alls munu um 500 björgunarsveitarmenn af öllu landinu taka þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur í dag. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að þetta sé umfangsmesta leit sem félagið hefur skipulagt.

Drónar og hundar verða notaðir við leitina en einnig fjöldi fjórhjóla og bíla. Auk þess munu tvær þyrlur taka þátt í leitinni en hún hefst klukkan níu.

Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í Fréttablaðinu í dag að stórt leitarsvæði sé undir þar sem um fjórir klukkutímar á laugardagsmorgninum 14. janúar eru óútskýrðir í ferðum rauða Kia Rio-bílsins sem talið er að tengist hvarfi Birnu.

„Eins og staðan er núna þá erum við að tala um stóran hluta af suðvesturhorninu sem við getum ekki útilokað. Við erum að tala um Borgarnes, Selfoss og allt Reykjanesið. Svo má bara draga hring á milli.“

Ásgeir segir að þegar svæðið sé afmarkað sé jafnframt tekið tillit til þess kílómetrafjölda sem ekinn var á tímabilinu sem skipverjarnir á Polar Nanoq höfðu bílinn til umráða. Bíllinn er bílaleigubíll og því er grannt fylgst með akstri bílsins hjá hverjum leigutaka fyrir sig.

Tveir grænlenskir skipverjar af togaranum sitja í gæsluvarðhaldi. Þeir voru í vikunni úrskurðaðir í tveggja vikna varðhald og gert að sæta einangrun meðan á því stendur. Lögreglan fór fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald en á það féllst héraðsdómur ekki. Úrskurðurinn var því kærður til Hæstaréttar sem enn á eftir að kveða upp sinn dóm.

Gríðarlega stórt leitarsvæði er undir í dag.vísir/fréttablaðið
Alls koma 500 björgunarsveitarmenn að leitinni í dag.vísir/ebg
Verkefnum úthlutað í morgun.vísir
Leitin hefst um níuleytið.vísir/ebg
Frá fundi björgunarsveitarfólks í morgun.

Tengdar fréttir

Leitin að Birnu: Svæði útilokuð sem eru ófær Kia Rio

Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Ráðist var í skipulag og útreikninga í gær til að útiloka ákveðin svæði frá leitinni. Fjórar klukkustundir eru óútskýrðar í ferðum rauða Kia Rio bílsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×