Innlent

Umdeilt skattahagræði auðmanna í Bretlandi

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú. Mynd/Anton Brink
Erlendir einstaklingar með háar fjármagnstekjur hafa mestan hag af því að skrá sig með þeim hætti sem forsetafrúin Dorrit Moussaieff hefur gert í Bretlandi, segir Jakob Jakobsson skattalögfræðingur.

„Einstaklingar sem búsettir eru í Bretlandi en með lögheimili utan Bretlands geta sóst eftir því að vera skilgreindir í skattalegu tilliti þar í landi sem „non-domiciled residents“ og samkvæmt breskum skattalögum greiða umræddir einstaklinga þá skatt af fjármagnstekjum sem upprunnar eru utan Bretlands með ákveðnum hætti,“ skýrir Jakob frá.

Hann segir athyglina í bresku samfélagi helst vera á skattlagningu auðmanna sem hafa umrædda skattalega stöðu.

„Bretar virðast með þessari sérstöku skattlagningu erlendra einstaklinga hafa skapað eftirsóknarvert umhverfi meðal annars fyrir fólk með háar fjármagnstekjur. Hefur þessi sérregla annars lengi verið umdeild þar í landi vegna þeirrar ívilnunar sem getur fylgt umræddri reglu hvað varðar skattlagningu erlendra auðmanna sem búsettir eru í Bretlandi,“ segir Jakob og segir reyndar að svo áratugum skipti hafi verið skiptar skoðanir í Bretlandi á skattlagningu fjármagnstekna erlendra einstaklinga.

„Stjórnmálamenn hafa lagt fram tillögur um allt frá því að afnema umrædda sérreglu og skattleggja allar fjármagnstekjur óháð uppruna í Bretlandi til þess að vernda eigi umrædda sérreglu þar sem afleidd áhrif hennar séu jákvæð fyrir breskt efnahagslíf,“ segir Jakob. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 5. maí


Tengdar fréttir

Ólafur og Dorrit skráð hjá Þjóðskrá að þau hafi slitið samvistum

Skilyrði þess að hjón hafi lögheimili á sitt hvorum staðnum er að þau séu skráð þannig að þau hafi slitið samvistum. Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson eru skráð með þessum hætti hjá Þjóðskrá Íslands. Þrjú hundruð íslensk hjón eru í sömu sporum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×