Erlent

Umdeildur Íslandsvinur hrósar stefnu Pútíns í málefnum samkynhneigðra

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Graham er ósáttur við stefnu Obama í málefnum samkynhneigðra.
Graham er ósáttur við stefnu Obama í málefnum samkynhneigðra. vísir/getty
Predikarinn umdeildi, Franklin Graham, segir stefnu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í málefnum samkynhneigðra betri en stefnu Baracks Obama Bandaríkjaforseta.

Graham var, eins og þekkt er orðið, gestur Hátíðar vonar sem fram fór í fyrra og hlutu skipuleggjendur hátíðarinnar, sem og biskup Íslands, mikla gagnrýni fyrir aðkomu sína að samkomunni.

Í pistli sínum í blaðinu Decicion, sem gefið er út af söfnuði Grahams, hrósar hann afstöðu Pútíns í garð samkynhneigðra en forsetinn undirritaði lög í fyrra þess efnis að bannað er að tala með jákvæðum hætti um samkynhneigð í návist barna og unglinga.

„Að mínu mati hefur Pútín rétt fyrir sér,“ skrifar Graham en að hans mati er frjálslynd afstaða Obama Bandaríkjaforseta til samkynhneigðra „til skammar“.

„Hann [Pútín] hefur tekið skýra afstöðu til þess að vernda börn þjóðar sinnar frá skaðlegum áróðri homma og lesbía. Forsetinn okkar og dómsmálaráðherra hafa snúið baki við Guði og hans gildum og margir þingmenn fylgja þeirra fordæmi. Þetta er til skammar.“

Fjölmennt var í Laugardagshöll þegar Graham predikaði þar í fyrra.

Tengdar fréttir

Hent út af Hátíð vonar

"Þetta var eiginlega bara félagsleg tilraun hjá mér. Mig langaði að sjá hvernig þeir myndu koma fram við mig og þeir hentu mér bara út,“ segir þungarokkarinn Sigurboði Grétarsson, en hann gerði sér ferð á Hátíð vonar í Laugardalshöllinni í dag.

Þjóðkirkjuprestar á bak við Hátíð vonar

Tveir prestar úr Þjóðkirkjunni eru í forsvari fyrir samtökin sem bjóða Franklin Graham á Hátíð vonar. Umdeild ummæli hans um samkynhneigð hafa vakið reiði á Íslandi. Agnes biskup átti að halda erindi á hátíðinni en íhugar nú að hætta við.

Allir miðar á Hátíð vonar ógiltir

Allir miðar sem pantaðir voru á Hátíð vonar hafa verið ógiltir. Eigendur miðanna hafa fengið sendan tölvupóst þess efnis en í honum kemur fram að það sé vegna „misnotkunar ýmissa aðila á miðasölu hátíðarinnar“.

Þátttaka Þjóðkirkjunnar að Hátíð vonar stendur

Biskup segir Þjóðkirkjuna ekki ætla að endurskoða aðkomu sína að Hátíð vonar, þar sem predikarinn Franklin Graham mun flytja boðskap sinn. Prestur Þjóðkirkjunnar og formaður Samtakanna "78 eru mjög ósáttir við þátttöku kirkjunnar.

Íhugar að hætta við

Biskup Íslands segir það slæmt að til séu kristnir menn sem standi ekki með fólki í réttindabaráttu. Hún íhugar nú hvort hún eigi að hætta við erindi sitt á kristilegu samkomunni Hátíð Vonar.

Gangbraut í litum samkynhneigðra við Laugardalshöll

Gangbraut við Laugardalshöll er óvenju litrík um þessar mundir. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa fest niður planka í litum regnbogans og munu plankarnir vera á gangbrautinni til frambúðar.

Segir enga spennu á milli hátíðanna

"Það var einhver aktívismi í gangi fyrir framan Laugardalshöllina en það var ekkert á okkar vegum. Við héldum bara okkar eigin hátíð á okkar vegum í Þróttaraheimilinu," segir Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna '78. Þessa stundina er fullt út úr dyrum á Hátíð vonar í Laugardalshöllinni.

Billy Graham eyðir stórfé í Hátíð vonar

"Það liggur í augum uppi að það er ekki ókeypis að leigja Höllina, birta allar þessar auglýsingar og hafa allan þennan tækjabúnað sem til þarf. Markmiðið er að gera þetta vel, þannig að öllum líði vel,“ segir Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hátíðar vonar.

Vill helst ekki vera í sama húsi og Graham

Samtökin "78 undrast ákvörðun biskups Íslands að halda erindi á Hátíð vonar. Formaður Félags múslíma á Íslandi segist virða skoðanir þeirra sem vilja sækja hátíðina, en persónulega vilji hann helst ekki vera í sama húsi og Franklin Graham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×