Sport

Umdeildasti íþróttamaður Bandaríkjanna vann áfrýjunarmál

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rice með eiginkonu sinni, Janay Palmer, fyrr í þessum mánuði.
Rice með eiginkonu sinni, Janay Palmer, fyrr í þessum mánuði. Vísir/Getty
Ray Rice, einn besti hlaupari NFL-deildarinnar síðastliðin ár, vann í dag áfrýjun á máli sínu gegn deildinni og er því heimilt að semja við lið í deildinni á nýjan leik.

Rice er einn umdeildasti íþróttamaður Bandaríkjanna í dag eftir að myndband birtist af honum þar sem hann sást slá unnustu sína, Janay Palmer, í lyftu. Palmer er í dag eiginkona hans en þau giftust fyrr á þessu ári, eftir að atvikið átti sér stað.

Aðkoma NFL-deildarinnar að málinu er afar skrautleg og hafa forráðamenn deildarinnar þurft að kosta miklu til að bjarga orðspori hennar. Rice var upphaflega dæmdur í tveggja leikja bann, sem hann tók út í upphafi núverandi leiktíðar, en þá var myndbandsupptökum af lyftuatvikinu lekið í fjölmiðla.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Rice var rekinn frá félagi sínu, Baltimore Ravens, og NFL dæmdi hann í ótímabundið bann. Málið vakti gríðarlega athygli í Bandaríkjunum og varð til þess að heimilisofbeldi hjá íþróttamönnum, ekki síst í NFL-deildinni, var sett í sviðsljósið.

Rice áfrýjaði ákvörðun deildarinnar að dæma hann í ótímabundið bann, þar sem hann taldi að það væri verið að refsa honum tvisvar fyrir sama atvikið. Undir þau rök var tekið og var ákvörðun NFL-deildarinnar þar með afturkölluð.

Rice er hins vegar án félags og óvíst að nokkurt lið í deildinni vilji láta bendla sig við leikmanninn að svo stöddu. Það er þó ekki útilokað.

NFL

Tengdar fréttir

Rice: Þarf að vera sterkur fyrir eiginkonuna mína

Ray Rice og eiginkona hans hafa óskað eftir því að fá frið frá fjölmiðlum eftir að myndband þar sem Ray sést rota hana í lyftu á hóteli lak á netið en hún virðist ætla að standa með sínum manni.

Lamdi ólétta unnustu sína

Ray McDonald, leikmaður San Francisco 49ers, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa gengið í skrokk á óléttri unnustu sinni.

Mayweather stendur með Ray Rice

Þeir eru ekki margir sem þora að standa með ruðningskappanum Ray Rice í dag en boxarinn Floyd Mayweather er þó einn þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×