Umdeild ummæli Magnúsar Orra Schram Birgir Dýrfjörð skrifar 30. maí 2016 15:48 „Við eigum að stofna nýja hreyfingu sem stefni saman fólki frá miðju til vinstri. Hreyfingu sem rúmar fjölbreyttar raddir og mörg sjónarmið”. - Þessi ummæli Magnúsar Orra Schram lýsa þeim draumi að sameina alla jafnaðarmenn í einni öflugri hreyfingu. Hann vill hefja samtal við aðrar stjórnmálahreyfingar og fólk utan flokka, um auðlindir í almannaþágu, um nýja stjórnarskrá, umhverfisvernd, eflingu velferðar, jöfn tækifæri o.fl. o.fl.Samfylkingin er ávöxtur þróunar og rökrétt er að halda opnum tækifærum til að hún geti þróast áfram. Á þeirri vegferð verður að sýna tillitsemi. Ekki má stranda á nafngiftum. Samfylkingin héldi t.d. vel sóma sínum í flokki sem héti Jafnaðarmannaflokkur Íslands.Gífuryrði.Það er eðlilegt að fólki sýnist sitt hvað um framtíðarsýn Magnúsar Orra og ræði það. En afar ómakleg ummæli Ólínu Þorvarðardóttur í fjölmiðlum, gefa þó tilefni til að skoða aðdraganda og tilurð Samfylkingarinnar.Fyrirsögnin um skrif Ólínu Þorvarðardóttur í fjölmiðlum var: “Ólína biðst vægðar gegn sjálfsmorðsárásum örvæntingarfullra formannsframbjóðenda.”Þar skrifar hún um „karlpeninginn“ í Samfylkingunni, sem boðar dauða flokksins nema hann fái að ráða honum. Hún skrifar þar um, að flokkurinn geti dafnað vel fái hann frið fyrir fólki með þeirra hugarfar. Ætli ráðið til að fá frið fyrir „karlpeningnum“ í Samfylkingunni sé þá að breyta henni í Kvennalista? Þróun samfylkingar félagshyggjufólks.Haustið 1989 voru viðræður milli fólks úr Alþýðubandalaginu og Alþýðuflokknum um að sameinast í framboði til borgarstjórnar Reykjavíkur. Ekki náðist eining í Alþýðubandalaginu, en öflugur hópur undir forystu Kristínar Ólafsdóttur, borgarfulltrúa og Margrétar Björnsdóttur og fleiri jafnaðarmanna í Alþýðubandalaginu ákvað að bjóða fram undir heitinu Nýr Vettvangur. Það var forsenda fyrir framboðinu að Alþýðuflokkurinn yrði ekki formlegur aðili að því. Þá tók Alþýðuflokkurinn þá djörfu ákvörðun, í fyrsta sinn frá stofnun hans, að bjóða ekki fram eigin lista til borgarstjórnar. Hann gaf af sínu og lýsti yfir stuðningi við Nýjan Vettvang. Enginn sakaði forustu Alþýðuflokksins um sjálfsmorðsárás. Enginn sagði þá um félaga sína, - einsog Ólína nú: „Flokkurinn á alla möguleika á því að dafna vel fái hann frið fyrir fólki með þetta hugarfar.“ Enginn lýsti því sem “sjálfsmorðsárásum örvæntingafullra frambjóðenda”. Enginn sagði þá að “karlpeningurinn” í Alþýðuflokknum “kepptist við að boða dauða flokksins nema þeir fái að stjórna honum.”Gráglettni.Við röðun á framboðslista Nýs Vettvangs var svo viðhaft opið prófkjör. Í efsta sæti listans lenti þekkt fréttakona í sjónvarpinu. Ólína Þorvarðardóttir. Hún var óflokksbundin. Varaformaður Alþýðuflokksins Jóhanna Sigurðardóttir hvatti svo flokksfólk mjög að kjósa óflokksbundna manneskju.Líklega er það skáldleg gráglettni örlaganna að tilvitnuð gífuryrði hér að ofan eru öll fengin úr skrifum Ólínu Þorvarðardóttur, sem hún birti vegna hugmynda Magnúsar Orra um að þróa Samfylkinguna áfram á nýjum vettvangi jafnaðarmanna.Var R-listinn sjálfsmorðsárás?Árið 1994 ákváðu félagshyggjuflokkarnir þrír í Reykjavík plús Kvennalistinn að sameinast í einu framboði, R-listanum. Líklega er tími R-listans árangursríkasta skeiðið í samstarfi félagshyggjuaflanna í landinu. Myndi Ólína kalla stofnun hans sjálfsmorðsárás? Varla. Árið 1994 varð einnig sá afdrifaríki atburður í sundrungarsögu félagshyggjuflokkanna að einn þeirra, Alþýðuflokkurinn, var klofinn. Jóhanna Sigurðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir og fleiri góðir jafnaðarmenn stofnuðu Þjóðvaka eftir að Jóhanna Sigurðardóttir tapaði formannskjöri í Alþýðuflokknum. Þá hefði verið hægt að snúa fyrrgreindum ummælum Ólínu um Magnús Orra upp á hana sjálfa, og tala um “kvenpening, sem keppist við að boða dauða flokksins nema þær fái að stjórna honum”. - Klofningur Alþýðuflokksins leiddi af sér stjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar, sem stóð í fjórtán ár, með þekktum afleiðingum.Stót skref- en ekki lokaskref.Árið 1999 ákváðu Alþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn, Samtök um kvennalista og Þjóðvaki að mynda kosningabandalag, sem síðar yrði flokkur. Kosningabandalagið var kallað samfylkingin. Engin var sakaður um sjálfsmorðsárás. Markmið samfylkingarinnar var að ná öllum þessum flokkum í eina hreyfingu. Það gekk að mestu leyti eftir utan þó að Alþýðubandalagið klofnaði. Úr þeim klofningi varð til stjórnmálaflokkur, Vinstri-Græn. Það á ekki að vera ámælisvert að hafa sem markmið, eins og Magnús Orri, að jafnaðarmenn þessara flokka og aðrir geti mæst sem jafningjar í einum samtökum. Þau gætu t.d. heitið Jafnaðarmannaflokkur Íslands.Núvitund er nauðsynleg.Ég hef hér að framan stiklað á nokkrum atriðum sem varða breytingar á starfsháttum félagshyggjuflokkanna á Íslandi. Lifandi samfélög taka breytingum. Stjórnmálahreyfingar mega ekki staðna. Þær verða að geta lagað starfshætti sína og skipulag að breyttum samfélögum. Það er kjarni lýðræðisjafnaðarmanna, að geta það og gera það, án þess að grunnkenningin: „ég á að gæta bróður míns” breytist. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hefur allt sem þarf Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju að gera rekstraráætlun? Karl Sólnes Jónsson skrifar Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Mannréttindi sama hvað Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson skrifar Skoðun Ótímabundin ráðgjöf til ríkisstjórnar Snæbjörn Brynjarsson skrifar Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar Skoðun „Vitum ekkert hvað við erum að gera“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Bergmál frá geymslustað líkamans Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli Kristinn Sigurðsson skrifar Skoðun Það verður ekki bæði sleppt og haldið Melkorka Mjöll Kristinsdóttir skrifar Skoðun Katrín og Gunnar Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Andleg heilsa unga fólksins og áhrif samfélagsmiðla Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Börnin okkar Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónusta til framtíðar Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn heldur utan um þig Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Öryggi – Forvitni – Gleði Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryrkjar auglýsi eftir harðorðum mótmælum! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Farsælar forvarnir í þágu barna í Reykjavík Guðrún Halla Jónsdóttir,Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar Skoðun Baldur í lit Anna Lára Pálsdóttir skrifar Skoðun Lega lýðveldisins Íslands Eiríkur Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Afhverju ætlar Carbfix að flytja CO2 inn til landsins? Bergur Sigfússon skrifar Sjá meira
„
Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason Skoðun
Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir Skoðun
Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar
Skoðun Farsælar forvarnir í þágu barna í Reykjavík Guðrún Halla Jónsdóttir,Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar
Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason Skoðun
Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir Skoðun