Innlent

Umdeild gamanmál Auðuns Blöndal og slagsmál nemenda á árshátíð MK

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjölmörg nemendafélög halda árshátíðir sínar um þessar mundir.
Fjölmörg nemendafélög halda árshátíðir sínar um þessar mundir. Vísir/Pjetur/Heiða
Nemendur og kennarar við Menntaskólann í Kópavogi héldu árshátíð sína með pompi og prakt í íþróttahúsi HK í Digranesi í gærkvöldi. Gestir samkomunnar eru misánægðir með hvernig til tókst en mikil umræða hefur spunnist um uppistand veislustjórans Auðuns Blöndal. Þá þurfti að kalla til lögreglu vegna óláta á dansleik sem fram fór að loknu borðhaldi.

Meðal kennara sem mættu á árshátíðina í gær er Magnús Már Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hann greindi frá því í gærkvöldi á Facebook að gaman hefði verið að fylgjast með flottum hópi ungs fólks skemmta sér. Hann hefði þó komið leiður heim. Ástæðan var brandaraval veislustjórans, Auðuns Blöndal.

„Það voru ekki homma- og typpastærðarbrandararnir einir sem ofbuðu mér. Það var upplegg hans um eigin tillögur að heitum á klámmyndum sem hann sá sjálfan sig og vini sína leika í,“ lýsir Magnús í færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli.

„Sjálfur ætlaði hann auðvitað að fara fyrir myndinni „Anaconda“. Gillz vini sínum ætlaði hann hins vegar aðalhlutverk í klámmyndinni „Nei, er ekkert svar„. Þetta var brandari fyrir honum. Um nauðgun. Fyrir fullan sal af 16-20 ára nemendum. Þvílíkur dómgreindarskortur,“ segir Magnús og setur spurningamerki við hvort brandarar sem þessir séu við hæfi.

Eftir að ég byrjaði að kenna hef ég fengið að taka þátt í árshátíð nemenda minna með því að vera boðið, ásamt öðrum...

Posted by Magnús Már Guðmundsson on Thursday, March 26, 2015
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari við Borgarholtsskóla, tekur undir með Magnúsi.

„Það er bara hreinlega ógeðfelt hvað þessir kvenfyrirlitningahúmor á greiðan aðgang að framhaldsskólamenningunni. Þessir félagar eru of tíðir gestir á þessum samkomum.“

Í kjölfar borðhaldsins var dansleikur í HK heimilinu. Þar þurfti tvívegis að kalla til lögreglu. Í fyrra skiptið var tilkynnt um rúðubrot og fékk dyravörður glerbrot í andlitið og þurfti að leita sér aðstoðar á slysadeild.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að vitað sé hver braut rúðuna og verði hann yfirheyrður vegna málsins. Í síðara skiptið sem lögregla mætti á svæðið var það vegna ábendinga dyravarða um að sautján ára piltur hefði stofnað til slagsmála fjórum sinnum þetta kvöld. Var hann handtekinn og svaf af sér í fangageymslum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×