Umboðsmaður vísar frá kvörtun 29. júní 2004 00:01
Umboðsmaður Alþingis hefur vísað frá kvörtun fréttastjóra Stöðvar 2 og Bylgjunnar vegna ákvörðunar Davíðs Oddssonar forsætisráðherra að neita að svara spurningum fréttastofunnar eftir að forseti Íslands synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar. Umboðsmaður telur það utan síns starfsviðs að taka afstöðu til athafna, eða athafnaleysis, ráðherra og alþingismanna. Sigríður Árnadóttir, fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar, sendi umboðsmanni kvörtun 8. júní sl. eftir að forsætisráðherra hafði ítrekað neitað að svara spurningum fréttamanna Stöðvar 2 af „einstæðum viðburði í sögu lýðveldisins, viðbrögðum sem vörðuðu alla þjóðina“, eins og segir í bréfi Sigríðar. Þar vísar hún til þess að 2. júní hafi forseti synjað fjölmiðlalögunum staðfestingar og síðan hafi fréttamenn Stöðvar 2 falast eftir viðbrögðum forsætisráðherra en því verið hafnað. Síðdegis sama dag hafi svo verið auglýst opinberlega að Davíð Oddsson yrði til svara í Kastljósi Ríkissjónvarpsins. Þá hafi verið enn og aftur óskað eftir að forsætisráðherra svaraði spurningum Stöðvar 2 en því verið hafnað. Í bréfi fréttastjóra til umboðsmanns er vísað til þess að umboðsmaður danska þjóðþingsins hafi fundið að því að forsætisráðherra Danmerkur gerði upp á milli fjölmiðla þar í landi. Umboðsmaður Alþingis bendir á að í því tilfelli hafi danski forsætisráðherrann gefið einum fjölmiðli afrit af ræðu en neitað öðrum fjölmiðli. Þar hafi því verið um aðgang að opinberu skjali að ræða en ekki viðbrögð í formi viðtals, einsog í tilfelli Davíðs. Meginniðurstaða umboðsmanns Alþingis er að óskað hafi verið eftir viðbrögðum Davíðs vegna „stjórnmálalegrar stöðu ráðherra“ en á þeim tíma hafi ríkisstjórn ekki tekið neina formlega afstöðu í málinu. Hann telur það falla utan við hlutverk sitt að taka afstöðu til athafna - eða í þessu tilviki athafnaleysis - ráðherra, sem einungis geti talist hluti af stjórnmálastarfi hans. Því telur hann að kvörtunin falli utan lögmælts hlutverks umboðsmanns.
Fréttir Innlent Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira