Umboðsmaður krefur Sigmundi Davíð svara fanney birna jónsdóttir skrifar 24. janúar 2015 12:00 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á að svara umboðsmanni Alþingis fyrir 1. september 2015.
Í kjölfar álits umboðsmanns á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þáverandi innanríkisráðherra og Stefáns Eiríkssonar þáverandi lögreglustjóra, sendi umboðsmaður Alþingis Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra bréf. Í bréfinu spyr umboðsmaður sérstaklega út í samþykkt siðareglna ráðherra, framkvæmd laga og reglna um skyldu til að skrá formleg samskipti og fundi og stöðu aðstoðarmanna ráðherra að lögum og útgáfu leiðbeinandi erindisbréfs fyrir aðstoðrmenn. Umboðsmaður telur í bréfinu að siðareglur, sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur setti sér, gildi um núverandi ríkisstjórn. Til þess hefði ríkisstjórnin öll þurft að samþykkja reglurnar sem slíkar. Í svari sem Sigmundur hafði sent umboðsmanni sagði hins vegar að birtar siðareglur gildi þar til þeim sé eytt. Umboðsmaður telur þar af leiðandi að siðareglurnar hafi ekki getað gilt um samskipti innanríkisráðherra og lögreglustjórans. Þá telur umboðsmaður að huga þurfi að reglum um skráningu formlegra samskipta í Stjórnarráðinu og framkvæmd þeirra. Er þar vísað til þess að samskipti ráðherra við lögreglustjórans hafi verið skráningarskyld en þeirri skyldu ekki sinnt. Umboðsmaður telur reglurnar ekki skýrar og tilefni kunni að vera til endurskoðunar á þeim.Skoða þarf leiðbeiningar fyrir aðstoðarmenn Að endingu telur umboðsmaður Alþingis að tilefni sé til að endurskoða leiðbeiningar fyrir aðstoðarmenn ráðherra, einkum með það að markmiði að tryggja aðgreiningu á milli hlutverks ráðherra með hliðsjón af þeim verkefnum sem fela má aðstoðarmönnum. Mögulega þurfi að koma fram afstaða til þess hvort og hvernig aðstoðarmenn megi haga beinum samskiptum sínum við forstöðumenn og starfsmenn undirstofnana og um heimildir þeirra til að fá aðgang að gögnum um einstök stjórnsýslumál. Umboðsmaður óskar eftir svörum ráðherra, fyrir 1. september 2015, um hvort ábendingar hans verði ráðuneytinu tilefni til viðbragða og þá hvaða. Hann muni síðan taka afstöðu til þess hvort hann taki þessi atriði til frekari athugunar.
Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Fleiri fréttir Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Sjá meira