Lífið

Um tvær milljónir mynda undir kassamerkinu #iceland - Ótrúleg fegurð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndirnar eru ótrúlega fallegar.
Myndirnar eru ótrúlega fallegar. vísir/instagram
Ísland er orðinn mjög vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. Á síðasta ári kom tæplega ein milljón manns til landsins og búist er við að talan fari vel yfir milljón á þessu ári.

Instagram er snjallsímaapp sem flest allir vita hvað er og er það mjög algengt að ferðmenn deili fallegum myndum á ferðalagi sínu á þeim vettvangi.

Þegar maður fer inn á Instagram hafa verið settar tæplega tvær milljónir mynda inn á Instagram með kassamerkinu #iceland. Um er að ræða ótrúlega fallegar myndir af íslenskri náttúru og vel þess virði að renna í gegnum þær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×