Innlent

Um þrjátíu skjálftar síðasta sólarhringinn

Atli Ísleifsson skrifar
Stærsti skjálftinn mældist upp úr klukkan 18 í gærkvöldi og var hann 4,1 að stærð.
Stærsti skjálftinn mældist upp úr klukkan 18 í gærkvöldi og var hann 4,1 að stærð. Vísir/Guðbergur Davíðsson
Engar stórvægilegar breytingar er að merkja á virkni í kringum Bárðarbungu síðasta sólarhringinn. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að rétt fyrir klukkan sex í morgun hafi rofað til á svæðinu og sést vel til gosbjarmans á vefmyndavélum. Þar séu engar breytingar að sjá.

„Jarðskjálftavirknin við Bárðarbunguöskjuna síðustu daga hefur verið hviðukennd, þá eykst skjálftavirknin tímabundið og dettur svo niður á milli. Um þrjátíu skjálftar hafa mælst þar síðasta sólarhringinn, sá stærsti varð í gærkvöld kl. 18:16, 4,1 að stærð.“

Á annan tug skjálfta af stærðinni 0,5 til 1,3 hafa mælst í kvikuganginum. Í gærkvöld hófst svo smáskjálftahrina við Herðubreiðartögl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×