Bíó og sjónvarp

Um sjö þúsund manns á Stockfish

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölmargar gæðamyndir voru sýndar á hátíðinni.
Fjölmargar gæðamyndir voru sýndar á hátíðinni.
Á sjöunda þúsund manns sóttu Stockfish-evrópska kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem lauk um helgina en þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar.

„Hátíðin heppnaðist afar vel og er gestum þakkaðar frábærar viðtökur. Bíó Paradís iðaði af lífi þá tíu daga sem Stockfish hátíðin stóð yfir,“ segir í tilkynningunni.

Fjöldi erlendra gesta sóttu hátíðina heim, bæði úr alþjóðlegu kvikmyndaumhverfi og blaðamenn. Á meðal þeirra voru hinn íslenski Sverrir Guðnason, leikari og Jens Östberg leikstjóri Flugnagarðsins / Blow Fly Park, Óskarsleikstjórinn Rachid Bouchareb og leikkonan, Brenda Blethyn.

Einnig komu til landsins norsku leikstjórarnir Unni Straume, Bent Hamer, Eskil Vogt auk Pavel Jech skólameistara hins þekkta FAMU skóla í Tékklandi og Christine Vachon, framleiðanda. Sigurður Sverrir Pálsson, kvikmyndatökumaður var sérstaklega heiðraður á hátíðinni en enginn íslenskur myndatökumaður hefur tekið upp jafn margar bíómyndir og hann, eða alls fimmtán talsins. Auk þeirra voru fjöldamargir fleiri gestir bæði viðstaddir viðburði og sýningar hátíðarinnar.

Sex fagfélög í kvikmyndagerð standa að Stockfish en þau eru: SÍK- Samband Íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SKL - Samtök kvikmyndaleikstjóra, FK - Félag kvikmyndagerðarmanna, FÍL – Félag Íslenskra leikara, WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi og FLH - Félag leikskálda og handritshöfunda og skipa fulltrúar þessara félaga stjórn hátíðarinnar.

Meðal samstarfsaðila eru Reykjavíkurborg og Evrópustofa. Fjórar kvikmyndir Stockfish halda áfram í almennum sýningum í Bíó Paradís, hin argentínska Wild Tales / Hefndarsögur sem var leikstýrt af Damián Szifrón og framleidd af Pedro Almodovar. Hún hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin.

Einnig verður áfram sýnd kvikmyndin sem vann áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, What We Do in the Shadows en hún var grínmynd ársins að mati Peter Bradshaw hjá The Guardian. Aðrar myndir sem fara í almennar sýningar eru The Trip to Italy og Flugnagarðurinn - Blowfly Park með Sverri Guðnasyni í aðalhlutverki, en hann var gestur hátíðarinnar ásamt leikstjóranum Jens Östberg.

Flugnagarðurinn - Blowfly Park mun fara inn í verkefnið Stockfish evrópsk kvikmyndahátíð á hjólum sem verður sett af stað á næstu vikum.


Tengdar fréttir

„Þá gæti ég skriðið inn í runna og dáið“

Sverrir Guðnason, sem er stórstjarna í Svíþjóð, var viðstaddur frumsýningu kvikmyndarinnar Flugnagarðurinn (Flugparken) á Stockfish kvikmyndahátíðinni í Bíó Paradís í kvöld.

Kvikmyndasjóður er fjárfestingarsjóður

Kvikmyndahátíðin Stockfish hefst í dag og Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiðandi segir að á hátíðinni sé að finna allt það besta sem evrópsk kvikmyndagerð hefur að bjóða auk þess að auðga tengslanet íslenskra kvikmyndagerðarmanna svo um munar.

Dæturnar eru í fyrsta sæti

Sverrir Guðnason hélt að barnsdraumurinn um að verða leikari væri glataður þegar hann flutti frá Íslandi til Svíþjóðar. Nú er hann einn vinsælasti leikari Svía en gætir sig á því að færa ekki dýrmætar fórnir.

Blessuð með algjöru metnaðarleysi

Ég ætla að skella mér Gullna hringinn, í Bláa lónið og kannski skoða ég Reðursafnið segir enska stórleikkonan Brenda Blethyn sem er gestur kvikmyndahátíðarinnar Stockfish sem nú stendur sem hæst í Bíó Paradís. Hún segir vinnuna með Mike Leigh hafa breytt öllu.

Kynjakvótar í kvikmyndagerð

Friðrik Þór óttast að illa fari í hinum viðkvæma bíóbransa ef kynjaðar forsendur eiga að ráða för; kynjakvótakrafan er sett fram á fölskum forsendum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×