Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Fréttablaðið Fastir pennar 07. febrúar 2012 06:00
Róbert R Spanó, prófessor og forseti lagadeildar HÍ
Róbert R Spanó, prófessor og forseti lagadeildar HÍ
Róbert R Spanó skrifar:
Börnin og lögin
Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn sem hópur í samfélaginu eiga mikið undir því að Alþingi og stjórnvöld nái þessum markmiðum auk þess sem ábyrgð foreldra er mikil. Þau eru því ávallt fullorðnum háð. Er því afar brýnt að málefni barna séu jafnan í brennidepli í réttarkerfinu, í sífellu sé leitast við að gera betur, styrkja stöðu þeirra, efla vitund og þekkingu um aðstæður þeirra og velferð. Er þetta áréttað í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar þar sem fram kemur að börnum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Mótunarár barna eiga að vera tími öryggis, umhyggju og gleði. Áföll sem verða í lífi barns geta fylgt því til æviloka.


Í samræmi við áðurnefnt stjórnarskrárákvæði er leitast við að tryggja réttarvernd barna með margvíslegum hætti í lögum. Þar má nefna menntalöggjöfina, barnalög, barnaverndarlög og refsilöggjöfina. Um þessar reglur væri hægt að hafa mörg orð. Að þessu sinni verður aðeins farið nokkrum orðum um nýlegar breytingar á almennum hegningarlögum í átt að aukinni refsivernd barna og fjallað sérstaklega í því sambandi um athyglisverðan dóm Hæstaréttar frá 19. janúar sl.


Nýlegar breytingar á ákvæðum hegningarlaga um kynferðisbrot gegn börnum
Á árinu 2005 fór þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra þess á leit við Ragnheiði Bragadóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, að hún tæki saman drög að frumvarpi til laga um breytingu á tilteknum ákvæðum almennra hegningarlaga. Endurskoðunin varðaði m.a. ákvæði laganna um kynferðisbrot gegn börnum. Með frumvarpi því sem Ragnheiður útbjó, sem var ítarlega og vel rökstutt, var m.a. lagt til að hugtakið nauðgun yrði rýmkað mjög frá því sem áður hafði gilt og að ungur aldur þolenda myndi virka til þyngingar við ákvörðun refsingar fyrir nauðgun. Þá var lagt til að upphaf fyrningarfrests kynferðisbrota miðaðist við átján ára aldur brotaþola, en ekki fjórtán ár eins og áður hafði verið. Við þingmeðferð frumvarpsins var raunar ákveðið að ganga lengra hvað varðaði flest alvarlegustu kynferðisbrot gegn börnum og fyrningarfrestur vegna þeirra afnuminn með öllu.

Í greinargerð þeirri sem Ragnheiður Bragadóttir vann við áðurnefnt frumvarp var sérstaklega rakið að beindist brot að ungum börnum, t.d. fjögurra til átta ára, væru ýmis dæmi þess í réttarframkvæmd að eingöngu væri dæmt fyrir brot gegn viðeigandi ákvæðum um kynferðisbrot gegn börnum. Nauðgunarákvæðinu væri þá ekki beitt jafnframt þar sem svo virtist talið að ekki væri beitt ofbeldi eða hótun um það. Tekið var dæmi um hæstaréttardóm frá árinu 1996 þar sem maður hafði samræði og önnur kynferðismök við dóttur sína frá því hún var sjö ára og allt þar til hún varð tíu ára. Var tekið fram í greinargerðinni að þetta væri „gagnrýnisverð niðurstaða". Í þessu sambandi var bent á það að nokkuð augljóst væri að þegar svo ungt barn ætti í hlut ætti hinn brotlegi alls kostar við það. Sú valdbeiting eða hótanir sem hann notaði til að fá fram kynmök væru því oft mun minni en þyrfti til þess að ná valdi á fullorðinni manneskju. Barnið væri hins vegar enn varnarlausara og ætti erfiðara með að verjast, skildi jafnvel ekki það sem fram færi. Það væri því eðlilegt að tekið væri tillit til þess að barn ætti í hlut þegar metið væri hvort beitt væri ofbeldi eða hótunum í skilningi nauðgunarákvæðisins. Slík lögskýring væri alveg í samræmi við skilgreiningu ofbeldis í ákvæðinu, þar sem í það væri lagður „mjög rúmur skilningur og engar kröfur [væru] gerðar um líkamlega áverka."

Framangreint frumvarp varð að lögum nr. 61/2007 og var við samþykkt laganna í öllum meginatriðum fylgt tillögum Ragnheiðar Bragadóttur prófessors. Með dómi Hæstaréttar 19. janúar sl. reyndi á þau sjónarmið um beitingu nauðgunarákvæðis hegningarlaga í tilviki barns sem rakin voru hér að framan, en að honum verður nú vikið.


Dómur Hæstaréttar 19. janúar 2012
X var m.a. ákærður fyrir fjórtán tilvik kynferðisbrota gegn telpu á aldrinum sjö til átta ára sem áttu samkvæmt ákæru sér stað á heimili hans þar sem telpan dvaldi oft vegna tengsla ákærða við móður hennar. Í einu þessara tilvika var X ákærður fyrir háttsemi sem taldist varða beint við nauðgunarákvæði 1. mgr. 194. gr. hegningarlaga og henni lýst þannig í ákæru að X hafi sett getnaðarlim sinn inn í kynfæri telpunnar og ekki látið af háttseminni þótt telpan bæði hann um að hætta.

Í héraðsdómi var ekki fallist á að þessi lýsing ákæru gæti svarað til nauðgunar, þ.e. að ákærði hafi við kynferðismökin beitt, eins og segir í ákvæðinu: ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung eða sviptingu sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Því hafi heldur ekki komið til álita hvort 194. gr. hegningarlaga gæti tekið til slíkra kynferðismaka við ung börn.

Niðurstaða Hæstaréttar var réttilega á annan veg og vel rökstudd. Þar segir að efni 194. gr. hegningarlaga hafi verið rýmkað verulega með lögum nr. 61/2007. Er svo bætt við að vegna ungs aldurs síns hafi brotaþoli verið varnarlaus gagnvart ákærða sem hafi átt alls kostar við hana og notfært sér yfirburðastöðu sína til að koma fram kynferðislegum vilja sínum gagnvart henni, en í þeirri háttsemi hafi falist ofbeldi af hans hálfu. Þarna styðst Hæstiréttur að hluta til orðrétt við forsendur þær sem fram koma í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 61/2007 og áður er rakin.

Ekki leikur vafi á því að Hæstiréttur hafi í dóminum beitt nauðgunarákvæðinu með þeim hætti sem ráð var fyrir gert með samþykkt laganna frá 2007. Með dóminum hefur það fræðilega viðhorf fengið staðfestingu að túlka verði ofbeldishugtak nauðgunarákvæðisins á þann veg að það geti tekið til þess þegar maður brýtur gegn barni með því að hafa samræði við það og nýtir sér þannig yfirburðastöðu sína. Dómurinn hefur að því leyti talsvert fordæmisgildi við úrlausn mála í framtíðinni. Loks skal þess getið að telja verður að með honum hafi Hæstiréttur að hluta til vikið frá eldri úrlausn í máli frá 23. apríl 2008, sem ekki gefst tóm til að rekja hér nánar.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar