Lífið

Úlfurinn ástfanginn af kærustunni

Leonardo Dicaprio og Toni Garrn gátu ekki slitið sér frá hvort öðru.
Leonardo Dicaprio og Toni Garrn gátu ekki slitið sér frá hvort öðru.
 The Wolf of Wall Street stjarnan, hinn 39 ára Leonardo Dicaprio talar ekki opinskátt um einkalíf sitt og hefur ekki minnst á nýju kærustuna opinberlega.

Það fer hins vegar ekki á milli á mála að leikarinn beri sterkar tilfinningar til Victoria´s Secret fyrirsætunnar Toni Garrn. Þau sáust kyssast innilega  á strönd á Bora Bora í síðustu viku.

Parið lét vel að hvort öðru og Garrn sem er 21 árs skellti sér úr bikini toppnum og sólaði sig berbrjósta á ströndinni.

Leonardo Dicaprio hefur einstakan áhuga á fyrirsætum en hann hefur áður verið í samböndum með fyrirsætunum Gisele Bundchen og Bar Refaeli. 

Kærastan skellti sér úr bikiní toppnum og sólaði sig.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×