Lífið

Úlfur Úlfur droppar glænýju lagi og myndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott myndband.
Flott myndband.
Rappsveitin Úlfur Úlfur gaf rétt í þessu út nýtt myndband við lagið Barn.

Það eru þeir Arnar Freyr Frostason og Helgi Sæmundur Guðmundsson sem mynda tvíeykið og hafa þeir slegið rækilega í gegn í íslenskri rappsenu undanfarin ár.

Myndbandið er sérstaklega glæsilegt en það er Freyr Árnason sem leikstýrir því. Myndbandið er framleitt af fyrirtækinu Tjarnargata en hér að neðan má heyra lagið Barn og sjá myndbandið við það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×